Ekkert voðalega oft sem við látum gamm geysa um tiltekin hótel eða gististaði enda margir betri en við í þeim fræðunum. En í Vancouver í Kanada er óhætt að gera undantekningu á því.

Öll herbergi hér skreytt með aldagömlum frumbyggjatáknum. Mynd Skwachays
Fljótlega dettur inn vegvísir okkar um þá ágætu borg en við vildum bara koma á framfæri þeim skilaboðum að í það minnsta eitt hótel í þeirri borg er nægilega sérstakt til að verðskulda nánari athygli.
Það var tilviljun ein að við gistum á hóteli í miðborginni sem heitir því fróma nafni Skwachays. Óskiljanlegt nafn öllum þeim er færir eru á enska tungu en um leið og tékkað er inn verður undarlegt nafnið og margt annað hér innandyra skiljanlegra.
Þetta hótel er nefninlega rekið af indjánum eða frumbyggjum svo notað sé nútímalegt orðalag. Það er að segja afkomendum ættbálks indjána sem hér réðu ríkjum áður en hvíti maðurinn kom, sá og sigraði, og drap, rændi og ruplaði velflesta í leiðinni.
Hótelið er rekið með styrk frá ríkinu en það er líka algjört lágmark hjá þjóð sem murkaði lífið úr tugþúsundum innfæddra hér á árum áður. First Nation heitir ættbálkurinn sem hér gerði sér hús og híbýli og naut vel áður en hvítir komu hingað í massavís til að leita gulls og grænna skóga. En það ber að hafa í huga að First Nation er notað í Kanada yfir alla þá sem voru í landinu aðrir en Inúítar þegar hvíta fólkið mætti og tók þar yfir.
Skwachays vekur strax athygli langt að því undarlegur skúlptúr stendur upp úr hótelinu miðju og það er ekki fyrr en komið er nálægt sem fólk áttar sig á að þar er um skurðgoð að ræða. Það ekki eina skurðgoðið sem hér er. Í anddyrinu er annað fallegt skurðgoð og ekki verða menn minna hissa að sjá hin ýmsu undarlegu tákn á veggjum, stólum, borðum og hillum bæði á herbergjum og á göngum þessa hótels. Allt eru þetta tákn frá First Nation ættbálknum og merkja öll eitthvað gott eða jákvætt. Ekki nóg með það heldur starfar hér aðeins fólk sem á beinar ættir að rekja til þeirra indjána sem hér voru fyrr á tíð.
Sannarlega ástæða til að skoða fyrir þá sem langar til Vancouver. Það er jú ekki svo oft sem hótel eru verulega öðruvísi en öll önnur hótel. Né heldur svo oft sem starfsfólk hefur ekkert á móti því að tjá sig við gesti um annað en fimbulfamb. Þetta er starfsfólk með sterkar skoðanir og það er frábært.
Mælum óhikað með dvöl hér.







