Ýmsar leiðir eru mögulegar nú til dags til að koma gagnrýni á framfæri og á það ekki síst við um netið þar sem raddir ósáttra finna sér oft stað.
Og fjölmargir eru fúlir út í írska lágfargjaldaflugfélagið Ryanair enda þykir forstjóri þess með meinfýsnari mönnum og nískari en andskotinn. Hann er maðurinn sem hefur viðrað hugmyndir á borð við að greiða sérstaklega fyrir aðgang að klósettum í flugi, að feitlagið fólk greiði sérstaklega fyrir tvö sæti og síðast en ekki síst datt karlinum í hug að taka sætin úr og bjóða aðeins ódýrari flug gegn því að fólk stæði meðan á flugi stæði.
Og eins og meðfylgjandi bráðskemmtilega tónlistarmyndband ber með sér er ákveðið írskt lágfargjaldflugfélag ekki hátt skrifað hjá þessum furðulega sönghópi.
Myndbandið hefur farið eins og sinueldur um netheima að undanförnu og ljóst að textinn hittir í mark hjá mörgum. Ekki sakar heldur að söngdívurnar taka nettan riverdans í leiðinni.







