Það er súrara en ferskur rabbabari þegar fólk greiðir allt of mikið fyrir gistingu á erlendri grund. Sem mörg ykkar virðast gera æ ofan í æ.
Það er ekkert leyndarmál að fleiri og fleiri kjósa að ferðast um heiminn á eigin vegum og forsendum og láta ekki duga að skjótast í tilbúnar og sterílar pakkaferðir ár eftir ár. Þar hefur Fararheill reynt að hjálpa til eftir megni og bent á ýmsar leiðir til að njóta dvalar erlendis mikið og vel og oft á tíðum á mun lægra verði en í hefðbundnum pakkaferðum.
Á öllum okkar vegvísum finnst hótelbókunarvél okkar sem við höfum um árabil fullyrt að sé sú besta í veröldinni. Sú finnur lægsta verð alls staðar, sú leitar bæði eftir villum, herbergjum, farfuglaheimilum, gistihúsum og hótelum og úrvalið margfalt meira og betra en langflestir keppinautar.
Engin þörf að taka bara okkar orð fyrir lengur samt því World Travel Awards valdi okkar bókunarvél þá bestu árið 2013, 2014 og 2015 og samkvæmt vefmiðlinum Trustpilot sem mælir traust fólks til hinna og þessara veffyrirtækja kemst enginn hótelbókunarvél með tærnar þar sem okkar hefur hælana. Með öðrum orðum, þá vorum við ekki að röfla innantóma steypu eins og reyndin er sums staðar.
Hver er svo munurinn að bóka hjá okkur og öðrum fyrir utan verð og úrval? Sá helstur að okkar leitarvél leitar á yfir hundrað mismunandi leitarvélum en ekki einni. Okkar leitarvél finnur tæplega fjögur þúsund gististaði í og við New York í Bandaríkjunum meðan aðrar vinsælar leitarvélar skila kringum þúsund. Og síðan hvenær hefur meira úrval ekki verið af hinu góða.
Svona að gamni áður en þú bókar gistingu erlendis hjá stórum aðilum á borð við flugfélögin sem mörg hver notast við bókunarvél Booking.com teljum við töluverðar líkur á að þú getir sparað þó nokkra þúsundkalla að skoða hvað við bjóðum áður en bókað er.
Nokkur dæmi hér að neðan svona ef þú ert ennþá efins:
- Fjögurra stjörnu hótel í New York í janúar (Booking 88 þúsund krónum dýrara en lægsta verð í boði)
- Vikudvöl á góðu hóteli í Orlando í Bandaríkjunum í febrúar (Booking 45 þúsund krónum dýrara en lægstbjóðandi)
- Fjögurra stjörnu gisting í Amsterdam í mars (Booking tæplega 30 þúsund krónum dýrari en lægstbjóðandi)








