Matur, drykkir, klósettpappír, bílaleiga, hótel. Við þurfum allt þetta og aðeins meira til ef við ætlum að gera okkur heimankomin á Spáni. En hvað hefur það í för með sér þegar litla aumingjalega krónan okkur byrjar að falla um leið og eitt einasta flugfélag fær niðurgang?

Hvað kostar að kaupa helstu nauðþurftir á Spáni þessi dægrin?

Jú, víst má deila um hvort að niðurgangur Wow Air eða stínker lélegar ákvarðanir seðlabankastjóra hafa valdið því að íslenska krónan hefur undanfarið fallið hraðar en dropi í Dettifossi.

Ef marka má hagfræði 101 ætti gjaldmiðill lands sem býr við þriggja til fimm prósenta hagvöxt EKKI að gefa eftir þó eitt og annað fyrirtæki gefi upp öndina.

En því miður er annaðhvort lítt að marka hagfræðinga eða smákrónan íslenska hopar og hoppar við aðrar kringumstæður en aðrir gjaldmiðlar heimsins. Hagfræðingar reyndar haft rangt fyrir sér oftar en tölu verður á komið undanfarin áratug og rúmlega það. Með öðrum orðum: fræðingar flestir vita ekkert meira en við, svona sæmilega hugsandi meðalplebbarnir, þrátt fyrir áralanga skólasetu.

Í lok ágúst 2018 þurfti Íslendingur að borga 122 krónur fyrir eina evru. Þegar þetta er skrifað þarf sami Íslendingur að grafa töluvert dýpra í vasann. Skitin evra þessa dagana kostar um 14o krónur að lágmarki. Plús auðvitað bankaálag því einhver þarf jú að greiða fyrir þrettánda mánuðinn launalega fyrir bankastarfsfólk og auðvitað drjúga desemberuppbót bankastjórans.

Sem sagt; þú færð núna 16 prósent minna fyrir hverja íslenska krónu en þú fékkst fyrir þremur mánuðum síðan. Ergo: allt alls staðar þar sem evra ræður ríkjum er nú töluvert dýrara en það var í sumar sem leið. Svona nokkuð á pari við að allt í Hagkaupum hafi hækkað um 20 prósent síðustu 90 daga eða svo sem merkir að allt sem þú kaupir á  „tax-free” dögum fyrirtækisins, sem var keypt fyrir margt löngu síðan, veitir alls engan afslátt í raun með tilliti til gengisfalls krónunnar.

Að því sögðu: hér nokkur glæný dæmi um hvað nauðsynjar kosta í vinsælli lágvöruverðsverslun í Andalúsíu á Spáni miðað við evruna á 141 krónu:

  • Fjórar rúllur af betri klósettpappír: 140 krónur
  • Sex lífrænt ræktaðir bananar: 70 krónur
  • Tveggja lítra vatnsflaska: 80 krónur
  • Hálft kíló af þekktu möluðu kaffi: 400 krónur
  • Sex egg frá frjálsum hænum: 240 krónur
  • Smjör 400 grömm: 250 krónur
  • Fjórar dollur af vinsælli jógúrt: 210 krónur
  • Lítri af vinsælum appelsínusafa: 170 krónur
  • Lítri af þekktri vinsælli extra jómfrúarolíu: 600 krónur
  • 18 flöskur af vinsælli tegund af bjór: 1400 krónur
  • 400 grömm af vinsælum brie osti: 260 krónur
  • Fjórtán lífrænt ræktaðar mandarínur í poka: 180 krónur
  • Lítri af venjulegri mjólk: 90 krónur
  • Hálft kíló af sykri: 110 krónur
  • Lítri af þekktu alþjóðlegu fimm ára gömlu viskíi: 2200 krónur

Víst þurfa verslanir heimavið að flytja allt inn og leggja ofan á til að allt borgi sig. En er eðlilegt að stærsta verslunarfyrirtæki landsins, Hagar sem eiga Hagkaup og Bónus, hagnist um milljarða króna hvert einasta ár?

Neibbs…