H inir og þessir miðlar fjallað um deilur flugfélagsins Play og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) síðustu dægrin og Jón og Gulla meðalplebbar engu nær um neitt. Kemur þá ekki Fréttablaðið til bjargar.

Forstjóri Play til vinstri og formaður ASÍ til hægri. Drífa hafði svo rétt fyrir sér eftir allt saman… Skjáskot RÚV

Tæpar tvær vikur síðan deilurnar hófust með því að ASÍ varaði almenning við að versla við hið nýja flugfélag því fyrirtækið væri að greiða starfsfólki sínu lægstu laun norðan Alpafjalla.

Play brást eðlilega ókvæða við, lögfræðingar í málið og málsókn hótað. Þvert á móti vildi forstjóri Play meina að fyrirtækið væri beinlínis að bjóða betri laun en hið ríkisstyrkta Icelandair. Fyrirtækið vildi þó ekki senda kjarasamninga sína á fjölmiðla til að sanna sitt mál og allra síst til okkar hér hjá Fararheill þó við óskuðum þess í þrígang.

En nú er hulunni loks svipt af hlutunum og við plebbarnir getum loks tekið sæmilega upplýsta ákvörðun um hvort við viljum eiga viðskipti við nýja flugfélagið. Fréttablaðið, nánar tiltekið hinn ágæti og þrautreyndi Garðar Örn Úlfarsson, komust yfir umræddan kjarasamning.

Skemmst frá að segja að starfsfólk Krambúða Samkaupa er með hærri byrjunarlaun en flugmenn hjá Play!!! Skemmst frá að segja að atvinnulausir eru nánast með sömu upphæð á mánuði og byrjunarlaun flugmanna flugfélagsins. Og hér verið að tala um flugmenn sem bera ábyrgð á 200 lífum hvert sinn sem þeir fljúga. Flugþjónar, hins vegar, byrja á launum sem kæmu fólki umsvifalaust í millistétt í Rúmeníu en aðeins vestar í álfunni gæti verið flókið að tóra mánuðinn þó fólk lifði á Heimilisjógurt mánuðum saman.

Forstjóri Play var því að ljúga allan tímann og tölur ASÍ því sem næst réttar. Þetta er lággjaldaflugfélag en líka láglaunaflugfélag.

Breytir þetta einhverju fyrir Jón og Gullu meðalplebba sem dreymir um sand milli tásla á Kanarí eða Alicante?

Varla það. Fólk þarf almennt að vera pínulítið hugsandi, sjá skóginn fyrir trjánum og geta lagt saman tvo og tvo til að kveikja á fattaranum. Ef Play býður áfram fantalág verð á flugi hingað og þangað verður landinn fljótur að setja súperlág laun starfsfólks til hliðar. Það hugsa jú flestir bara um sjálfa sig…