Í slenska flugstéttarfélagið er líklega eina stéttarfélag heims sem er í einkaeigu og af því leiðir að ”stéttarfélagið” vill ekki gefa upp nokkurn skapaðan hlut um nokkurn skapaðan hlut. Það er ákveðið vandamál fyrir flugfélagið Play.

Vafi á vafa ofan… Mynd Play

Hmmm!

Enginn hér hjá Fararheill sérfræðingur í stéttarfélögum en af fréttum að dæma geta bæði Gulla smiður og Jón uppvaskari stofnað stéttarfélag sísona vandræðalaust.

Sem er auðvitað príma mál fyrir okkur hér hjá Fararheill því okkur lengi dreymt um að stofna slíkt félag með fimm þúsund króna árlegu framlagi félaga sem dekkar allt undir sólinni. Stofnun er á döfinni en við bíðum framlags frá Samherja.

Að gamni slepptu er afskaplega miður að heyra að stéttarfélag það sem flugfélagið Play gerði samning við nýverið er í EIGU þriggja einstaklinga!!!

Jamms, þú last þetta rétt. Íslenska stéttarfélagið er einkarekið fyrirbæri sem er líklega nýjung í veraldarsögunni. Sem aftur útskýrir hvers vegna það félag fellst á mjög undarleg og lág launakjör án þess að blikka auga.

Einhver Vignir Örn Garðarsson er formaður Íslenska stéttarfélagsins. Ekkert finnst um þann gaurinn eftir gúggl svo hann hefur varla brotið lög hingað til sem vitað er af. En það stórundarlegt að sá kauði vilji alls ekki gefa upp hvaða einstaklingur hafi skrifað undir kjarasamning fyrir hönd Play við Íslenska stéttarfélagið.

Svona ef Vignir hefur misskilið eitthvað þá er heila hugmyndin með stéttarfélögum sú að allt sé uppi á borðum. Enginn þurfi að hafa áhyggjur að ekki sé fylgt lágmarkslögum og enginn þurfi að hafa áhyggjur af að flotta stelpan eða flotti strákurinn fái hærri laun fyrir sömu vinnu.

Play er, með öðrum orðum, komið í bullandi varnarbaráttu eftir að hafa ítrekað lýst yfir að laun starfsmanna séu töluvert hærri en laun sama fólks hjá Icelandair.

Sennilega óhætt á þessu stigi að vara við viðskiptum við Play. Því jafnvel þó aðdróttanir Alþýðusambands Íslands eigi sér enga stoð lítur allt mjög illa út fyrir Play ef þeirra eigin stéttarfélag stundar leynimakk. Leynimakk er nefninlega samasemmerki við svindl og svínarí 😉