
Ný og betri Norræna tekin til starfa. Mynd Smyril Line
Sem kunnugt er siglir Norræna reglulega milli Íslands, Færeyja og Danmerkur frá Seyðisfirði og þessa stundina er fyrirtækið að bjóða afar fín kjör á tæplega vikutúr til Færeyja á tilteknum dagsetningum. Flott gisting á Hótel Brandan og bíllinn fær að fljóta með eins og lesa má um hér. Ekki dapurt heldur að ferjan sjálf hefur fengið fína andlitslyftingu og allt þar nýtt í hólf og gólf.
Prísinn á ofangreindu miðað við tvo saman í innriklefa er 179.980 krónur. Það dekkar siglinguna með bíl plús sex nátta gistingu með morgunverði.
Það kann að hljóma í dýrari kantinum sé miðað við viku eða tvær á Tenerife eða í Alicante en miðað við Færeyjar er þetta gjafverð. Við hér sannreyndum það með ítarlegri leit á átta mismunandi bókunarsíðum. Allra lægsta sex nátta gistingin á Hótel Brandan sem við fundum kostaði rétt tæpar 170 þúsund krónur.
Í því ljósi má segja að siglingin sjálf sé því sem næst FRÍ. Það er tilboð sem bragð er að hafi þig einhvern tíma langað að heilsa upp á þessa náfrændur okkar. Þú finnur töluvert meira um Færeyjar með því að leita á vef okkar.
Eini mínusinn sem við fundum við tilboð Smyril Line er að ekkert slíkt tilboð er fyrir fólkið sem elskar náttúruna það mikið að það á engan bíl. En það er önnur saga.







