Veitingastaður einn í smábæ í Sviss hefur vakið mikla athygli þarlendra fjölmiðla en eigandinn hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að sekta alla viðskiptavini sína sem ekki klára allan matinn sem þeir panta.

Nýstárleg lausn á hræðilegu vandamáli. Mynd Cedric Leclare

Nýstárleg lausn á hræðilegu vandamáli. Mynd Cedric Leclare

Þetta gerir eigandi Patrizietta til að sporna gegn því að mat sé hent en mikil vakning er á þessu um heim allan. Það sem meira er; veitingahúsasamtök í Sviss telja þetta framúrskarandi skref og hyggjast beina þeim tilmælum til félaga að feta sama stíg.

Ekki svo að skilja að hart sé gengið eftir sektinni sem nemur um 800 krónum því hugmyndin er fyrst og fremst að vekja athygli á vandamálinu. Margoft hefur komið fram að á heimsvísu endar milli 30 og 40 prósent alls matar í ruslinu. Það er ægilegt magn og hræðilegt þegar haft er í huga að helmingur mannkyns lifir í eða við fátæktarmörk.

Því ágætt að hafa nokkra hundraðkalla aukalega í veskinu áður en haldið er út að snæða í Sviss ef fram heldur sem horfir. Það eða panta ekki meira en þú borðar.