Hæ hó, jibbí jei og allt það. Hið breska easyJet hefur sent sumaráætlun sína fyrir árið 2014 út á öldur ljósvakans og þar gildir hið gamalkunna „fyrstir koma, fyrstir fá.“

Biblían segir að þeir síðustu verði fyrstir en það gildir ekki hjá easyJet

Biblían segir að þeir síðustu verði fyrstir en það gildir ekki hjá easyJet

Fararheill sýnist við fyrstu sýn margt girnilegt í boði hafi fólk þolinmæði til að bíða fram á næsta sumar til að njóta ávaxtanna af því að vera fyrirhyggjusamt. En Íslendingar fara seint í metabækur sem fyrirhyggjusamir. Ekki einu sinni miðað við höfðatölu.

Þar er til dæmist auglýst flug Keflavík til Luton frá 26 pundum aðra leiðina´í apríl. Sem útleggst sem 5.053 krónur samkvæmt myntbreytinum okkar. Það er strípað verð án farangurs og þjónusta skorin við hefðbundna nögl en fjandakornið samt brilljant verð.

Til samanburðar finnum við ódýrast fargjald til London í apríl með Wow Air aðra leið út á krónur 20.900 og hjá Icelandair sömu leið á 19.530 krónur. Það er rúmlega helmingi dýrara þó Icelandair hafi nú góða stöðu enda farangur þar innifalinn.

Tékk it.