Það er næstum sem maður sé að bóka flug og gistingu gegnum easyJet skoði fólk 2-fyrir-1 ferðatilboð Heimsferða þessi dægrin. Allnokkur fantagóð tilboð í sólina svo lengi sem fólk komist úr vinnu með litlum sem engum fyrirvara.

Tveggja stjörnu skítadvöl með engu á Benídorm á 2-fyrir-1 tilboði Heimsferða skýtur dálítið skökku við ekki satt? Skjáskot
Merkilegt hvað stórar íslenskar ferðaskrifstofur geta lækkað verð á ferð um helming ef ekki er fullt í túrinn þegar sjö til tíu dagar eru til stefnu. Það segir hugsandi fólki ýmislegt um þá álagningu sem ferðaþjónustufyrirtæki leggja á skipulagðar ferðir.
Að því sögðu er óvitlaust fyrir þau okkar sem síðast sáu glitta í sól á himni í ágúst á síðasta ári að skella sér yfir á 2-fyrir-1 síðu ferðaskrifstofunnar Heimsferða. Þar er jú auðvelt að finna fáránlega dýr sumartilboð en inn á milli algjörlega kostulega túra á lágmarksverði.
Fáránlega dýrt er til dæmis vikudvöl á tveggja stjörnu íbúðahóteli á Benídorm frá 24. júní og flug til og frá að næturlagi í þokkabót. Sjö nætur á Don Jorge Apartments kosta, á 2-fyrir-1 tilboði Heimsferða, litlar 197.240 krónur fyrir tvo saman. Sem bendir til þess að „normalt” verð á þeirri ferð hefur verið 394.380 krónur fyrir vikustund á Benídorm!!! Nákvæmlega ekkert normal við þá verðlagningu á skítahóteli með engu. Þvert á móti geðveikt OKUR.

En svo leynast gullkorn inn á milli 😉
En viti menn! Það finnast líka kostakjör á sömu tilboðssíðu ferðaþjónustufyrirtækisins. Til dæmis fjórtán daga túr til Maspalomas á Kanarí þann 19. júní á sæmilegu þriggja stjörnu hóteli með svölum niður í 133.090 krónur samtals. Sem sagt 66.545 krónur á kjaft ef tveir ferðast saman. Það er aftur á móti dágott tilboð hvað sem tautar og raular. Og ekki þarf að kvarta mikið yfir sólarleysi á Kanarí í júní eða júlí 😉
Um að gera að skoða tilboð ferðaskrifstofanna íslensku. Oftast nær eru þau ekki ýkja merkileg en inn á milli leynast gullkorn en þá aðeins svo lengi sem þú, makinn og jafnvel börnin komist út með litlum fyrirvara. Fæst okkar eru í slíkri stöðu í störfum okkar en kannski átt þú skilningsríkan yfirmann 🙂







