Ekki í fyrsta skipti og líklega ekki það síðasta heldur. Icelandair auglýsir nú á fésbókinni fargjöld sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum og ganga í berhögg við neytendalög í landinu.

Kíkjum á auglýsinguna sjálfa hér til hliðar. Algjör súpertilboð svo ekki sé meira sagt. Níu þúsund og níu hundruð krónur aðra leiðina til Dallas, Philadelphia, Chicago og Washington svo nokkuð sé nefnt. Algjörlega brilljant tilboð og það jafnvel þó ferðast sé á sardínufarrými með ekkert meðferðis.

Alas, ekki alveg að marka pakkann sé betur skoðað.

Í ljós kemur, eins og sjá má hér neðar, að níu þúsund og níu hundruð króna fargjaldið, gildir aðeins um flug til Bergen og Osló. Ef Noregur er ekki draumurinn þá þarftu að punga út töluvert hærri upphæð fyrir flugið en Icelandair vill telja þér trú um.

Það kemur sem sagt í ljós að þú kemst ekki skref til Washington, Dallas, Chicago eða Philadelphia fyrir 9.900 krónur eins og Icelandair gefur í skyn. Neibbs, ekki aldeilis. Önnur leið til Dallas á „hraðtilboði” kostar einstakling að lágmarki 29.900 krónur. Aðeins 202% dýrara en Icelandair gefur í skyn í auglýsingum sínum!!!

Alltaf gaman að fífla neytendur og lög landsins bara eitthvað ofan á rúgbrauð hjá Icelandair…