Íslenskir fjárfestar fá almennt engin verðlaun fyrir skarpskyggni. En svo virðist sem margir þeirra séu farnir að þurrka móðuna af gleraugunum og leggi haus í bleyti reglulega.

Ónýtur stjóri út, nýr stjórnarformaður inn. En allt kemur fyrir ekki. Hlutabréf Icelandair sökka samt. Skjáskot
Hingað til hefur dugað að flottur gaur hjá flottu fyrirtæki haldi skemmtilega ræðu til að gengi þess félags fái feitan byr undir vængi meðal innlendra fjárfesta.
Þess vegna er gaman að sjá að fjárfestar eru ekki alveg að kaupa væl Úlfars Steindórssonar, stjórnarformanns Icelandair, þegar sá lofar gulli og grænu, bættum hag og einhverjum blómum í haga.
Hlutabréf í Icelandair hafa bara færst niður á við þó nýr stjórnarformaður lofi bót og betrun, flugfélagið sýni hörku gagnvart starfsfólki og sé í feitri útrás á Grænhöfðaeyjum. Eitt stykki bréf í flugfélaginu kostaði heilar sjö krónur þegar markaðir lokuðu á föstudaginn var. Bréfin hafa fallið um tæp ellefu prósent síðan stjórnarformaðurinn sjálfur eyddi hundrað milljónum króna í hlutabréf þann 13. ágúst síðastliðinn.

Nýr stjórnarformaður ekki alveg að vekja traust hjá fjárfestum…Skjáskot
Gott mál í alla staði. Hugsandi milljarðamæringar eru alltaf betri en vitlausir milljarðamæringar og Íslandssagan stútfull af þeim síðarnefndu. Líka gott mál vegna þess að herra Steindórsson sem barist hefur fyrir því að hlutastarfsfólk hjá Icelandair taki pokann sinn og hefur svo lítið beri á fellt niður fjölda flugferða og flugleiða, virðist ekki alveg vera að rokka meðal fjárfesta þrátt fyrir allt.
Eðalflott mál. Megastórt ferðaþjónustufyrirtæki sem er með buxur á hælum og kúk í brók eftir flottasta ferðamannatímabil Íslandssögunnar á ekki skilið að lifa neitt mikið lengur…







