Rúmlega vikulöng sérferð Úrval Útsýn til Havana á Kúbu í byrjun nóvember hljómar ekki illa svona ef fólk er fífl sem finnst erfitt að leggja saman tvo og tvo. Átta daga ferðin á þessar rómuðu slóðir kostar AÐEINS 369.900 krónur á mann ef tveir ferðast saman.

Frábær ástæða fyrir að leggja blátt bann við að tiltekið fólk stundi viðskipti er Pálmi Haraldsson, eigandi Úrval Útsýn.
Hljómar spennandi ekki satt. Um að gera að skoða nánar á vef Úrval Útsýn hér.
Kannski setur einhver spurningarmerki við verðið. Allra ódýrasti pakkinn hjá ferðaskrifstofu manns sem hefur svindlað og svínað frá því að hann fékk hár á punginn kostar að lágmarki 739.800 krónur á hjón eða par.
Leyfum okkur að endurtaka lægsta verðið: 739.800 krónur. Hmmm. Er það ekki dálítið vel í lagt fyrir vikutúr rúman til Havana á Kúbu?
Ók, byrjum á byrjuninni. Stórt kúdos á Úrval Útsýn fyrir að bjóða almennt ferðir til Kúbu því það er ekki sjálfgefið. En hvers vegna í ósköpunum að okra svo á pakkanum að jafnvel milljarðamæringum blöskrar?
Vissulega hér um að ræða „beint” flug frá Keflavík til Kúbu ef ekki er tekið tillit til þess að millilent er í Kanada bæði fram og aftur. Sem sagt óbeint flug.
Látum það liggja milli hluta. Öllu verra að allra, allra ódýrasti pakkinn, miðað við tvo saman, flug plús gisting, kostar 739.800 krónur. Þar um að ræða flugið plús fimm stjörnu gistingu á Melia Cohiba Hotel Havana með morgunverði. Guð hjálpi oss öllum ef okkur dytti í hug að gista á Parque Central Colonial Havana, sem einnig er fimm stjörnu hótel sem með morgunverði kostar mann plús flugið 479.900 krónur eða alls 959.800 krónur á parið.
Hvers vegna er þetta okur dauðans?
Jú, sökum þess að á hótelvef okkar kostar á sama tímabili og ferð Úrval Útsýn, vikulöng gisting á Melia Cohiba Hotel Havana alls 170.200 krónur 10. til 17. nóvember 2018. Sem sagt 85.100 krónur per mann miðað við tvo saman.
Nú er óhætt að fullyrða að Úrval Útsýn nýtur betri kjara en litli Fararheill með sinn litla hótelvef. En ef að það er rétt þá þýðir þetta að þú ert að borga fyrir flugið til og frá litlar 569.600 krónur fyrir tvo saman. Með öðrum orðum; flugið til Kúbu og heim aftur kostar manninn 284.800 krónur!!!
Húh! Ekki minnast á súpergistinguna á Parque Central Colonial sem kostar alls 479.900 á mann. Vikulöng gisting á hótelvef okkar þar á sama tíma og ferð Úrval Útsýn er í boði kostar með morgunmat 2019 evrur alls eins og sjá má hér til hliðar. 2019 evrur gera alls 261 þúsund krónur alls. Það merkir að flugið plús fararstjórn kostar hjónakorn eða par alls 698.800 krónur eða 349.400 krónur á haus.
Með öðrum orðum: flug plús fararstjórn kostar miklu meira ef þú kýst dýrari hótel á vef Úrval Útsýn. Sem er undarlegt því óbein flug til Havana á sama tímabili fást kringum 80 þúsund krónur per haus miðað við tvo saman ef flogið er gegnum Kanada, Bandaríkin, Spán eða Frakkland.
Þetta er, sem sagt, okur dauðans. Ekki láta plata þig…







