Skrýtið er fólk. Það má ekki opnast skitin vík á Svalbarða eða Grænlandi án þess að risastór skemmtiferðafyrirtæki skipuleggi ferðir þangað prontó og það oft með hörmulegum afleiðingum.

Óendanlega sorglegt. Nú þurfa ísbirnir ekki aðeins að glíma við alvarlega hlýnun jarðar heldur líka sjálfumglaða ferðamenn á ólíklegustu klökum.

Alls ágætt dæmi um það frá Svalbarða Noregs hér fyrir rúmri viku síðan. Þá voru nokkrir farþegar að skella sér í land á afskekktum klaka og pissa á sig af spenningi að stíga á fábrotna eyju. Nema dúlleríið tók óvænta stefnu þegar fullorðinn ísbjörn tók á móti ferðalöngunum og gerði sig líklegan til að fá sér máltíð.

Ísbjörninn skotinn til bana með det samme og ferðamennirnir fengu aðeins meira fyrir sinn snúð en auglýst var í bæklingunum. Aðeins sjöundi ísbjörninn sem er skotinn til bana vegna ógnar við ferðafólk í Noregi á þessu ári.

Ekki ólíklegt úr því að vellauðug skipafyrirtæki eru farin að bjóða siglingar um hinar ýmsu trissur sem frá örófi alda hafa verið lokuð skipum sökum íss, að dýralíf á þeim sömu slóðum fari á sömu vegu og dýralíf í hinni mikilfenglegu Afríku. Þar eru nú eftirlifandi sirka sjö flóðhestar, fimmtán ljón, átján fílar og 59 dádýr eða hér um bil. Svo fá villidýr að spekingar spá því að börn sem fæðast í dag munu aldrei upplifa villt dýr í náttúru Afríka. Og sennilega ekki heldur villt dýr á heimskautunum mikið lengur…

Í guðanna bænum látið dýr nálægt heimskautunum í friði. Það er alveg nógu gaman í Róm, Istanbúl og Macau.