Nú þegar ívið harðara er í ári hjá mörgum íslenskum fjölskyldum hefur sjaldan verið mikilvægara að spara peninga eins og hægt er.
Ein leið til þess þegar skipulögð eru ferðalög út í heim er að taka stundarkorn til að bera saman þær fjölmörgu hótelbókunarvélar til að finna hótel á netinu. Þannig er hægt að spara frá þúsundkalli og allt upp í 50 þúsund fyrir eitt og sama hótelið.
Töluverður fjöldi fólks nýtir sér hótelbókunarvélar þær sem flugfélögin Icelandair og Iceland Express bjóða upp á á síðum sínum en stikkprufur ritstjórnar Fararheill.is leiða í ljós að þær bjóða ekki endilega bestu verðin eins og sjá má hér að neðan.
Þó töluverðan mun megi greina á verðinu hér að neðan er eingöngu um stikkprufur að ræða og sé leikurinn endurtekinn með öðrum sex hótelum gæti niðurstaðan litið öðruvísi út. Miðað við þessa töflu er HRS bókunarþjónusta Icelandair hvað verst og töluvert dýrari en að bóka hjá Booking þjónustu Iceland Express sem er nokkuð á parinu við það sem hótelin bjóða sjálf á heimasíðum sínum.
Einfaldasta leiðin til að eyða ekki of miklum tíma í hótelleit en vera engu að síður nokkuð viss um að fá besta verðið hverju sinni er að mati ritstjórnar vefmiðilinn HotelsCombined. Sá dregur saman öll tilboð allra bókunarvéla á einn stað. Hann er þó þeim galla gæddur eins og margir aðrir hótelvefir að hótelin sjálft oft á tíðum bjóða tímabundin tilboð á heimasíðum sínum sem ekki koma fram annars staðar.
| IE/Booking.com | Icelandair/HRS | HotelsCombined | Hótelið sjálft | |
| Eurostars Lucentum, Alicante, 30.- 9.júl. | 87.127 | 101.155 | 83.760 | 86.291 |
| Art Hotel Congress, París, 27.-30.ág. | 96.990 | 96.534 | 77.161 | 101.342 |
| Aldea Novum, Berlín, 20.-25.júl. | 40.320 | 39.624 | Ekki í boði | 47.326 |
| Skeppsholmen, Stokkhólmi, 12.- 18.okt. | 166.773 | 222.292 | 165.078 | 157.144 |
| Neuen Börse, Frankfurt, 1.-6.des. | 93.729 | 92.574 | 92.574 | 92.574 |
| Ratchaprasong, Bangkok, 14.- 30.jan | 328.054 | 377.606 | 327.075 | 328.115 |
| 812.993 | 929.785 | 812.792 |






