Icelandair býður nú sólarhringstilboð til Kaupmannahafnar en grípa verður gæsina á næsta sólarhring.
Gæsin atarna er þó ekki stórkostlega merkileg heldur býðst flugfar aðra leiðina til höfuðborgar Danmerkur á 14.900 krónur. Fram og tilbaka kostar ferðin 30.760 krónur miðað við sæti í economy klassa.
Er ferðatímabil frá 4. mars til 10. júní. Gildir tilboðið aðeins fyrir félaga í vildarklúbbi flugfélagsins og sætaframboð er takmarkað.






