Tíðindi

Sólarhringstilboð Iceland Express

  21/03/2010maí 17th, 2014No Comments

Á miðnætti hefst sólarhringstilboð flugfélagsins Iceland Express til nokkurra borga Evrópu.

Býðst farið aðra leið með sköttum á 9.900 krónur. Með tilliti til að reglubundin fargjöld flugfélagsins fram og til baka til Evrópu finnast vart lengur undir 40 þúsund krónum og reyndar mun hærra en það er þetta tilboð góður kostur.

Í boði eru allmargir af þeim stöðum sem flugfélagið flýgur til í Evrópu og er því hægt að grípa 20 þúsund króna afslátt hið minnsta sé ferðin keypt næsta sólarhringinn.

Sjá nánar á heimasíðu Iceland Express hér.