Það þarf að hafa sterkan pung eða pjöllu til að setja Beirút í Líbanon á fötulistann yfir næsta stopp. En ef fólki er alvara með að stíga út úr þægindarammanum eru fáir staðir betri til þess arna. Ekki hvað síst í desembermánuði 😉

Og þú hélst að Beirút væri skítapleis…

Plúsarnir: Beirút stendur við botn Miðjarðarhafs og þar er hitastig allvænlegt fölbleikum Íslendingum ekkert síður en á suðurströndum Möltu, Ítalíu eða Spánar. Það jafnvel í desembermánuði þegar meðalhitastig reynist vera um og yfir 20 gráðurnar. Í ofanálag kostar þar skid og ingenting að lifa og njóta enda Líbanon fátækt land. Í þriðja lagi verðurðu öllu merkilegri í næstu veislu þegar þú montar þig af kósíheitum í Beirút þegar allir aðrir eru með sömu þreyttu sögurnar frá Tenerife.

Mínusarnir: Engir

Nú er hægt að negla flug fram og aftur frá Íslandi alla leiðina til Beirút í desember og janúar á tilteknum dagsetningum fyrir svo lítið sem 50 þúsund krónur báðar leiðir!!! Til þess þarf fólk að negla flug með Icelandair til Amsterdam í Hollandi (30-45 þúsund krónur þegar þetta er skrifað) og síðan bóka flug með Transavía frá Amsterdam til Beirút og til baka (15-22 þúsund krónur þegar þetta er skrifað.)

Hreint súperverð á sólarslóðir yfir myrkustu mánuði ársins og við mönum fólk til að finna ódýrara flug til vinsælla staða á Spáni fyrir þennan pening.

Vefur Transavia hér. Vefur Icelandair hér.