Áfram er veðurfar að leika ferðalanga grátt í Evrópu annan daginn í röð. Gatwick flugvöllur er áfram lokaður í dag og verður Iceland Express að gera svo vel að fljúga til Stanstead flugvallar í dag. Enn sem komið er Gatwick þó eini stóri flugvöllurinn sem lokaðist vegna snjóa. Áfram er spáð snjókomu í Bretlandi.
Ástandið er sýnu skárra á meginlandinu. Tafir eru þó víða enda snjór á flestum flugvöllum og við þær aðstæður er lending erfiðari en ella.
Spár gera ráð fyrir að veður fari skánandi þegar kemur fram á helgina en til morguns ættu flugfarþegar að hafa í huga að för getur tafist nokkuð.






