Íslensk ferðamálayfirvöld misstu sig alveg í svartsýninni þegar gos hófst í Eyjafjallajökli snemma árs 2010. Þar sáu menn fram á ónýtt sumar og svo nístandi var gráturinn að stjórnvöld fundu sig knúin til að eyða milljarði króna í sérstakt Inspired by Iceland átak.

Sex árum eftir útkomu kvikmyndarinnar um Borat viðurkennir utanríkisráðherra Kasakstan að Borat hafi tífaldað vinsældir landsins meðal ferðamanna

Sex árum eftir útkomu kvikmyndarinnar um Borat viðurkennir utanríkisráðherra Kasakstan að Borat hafi tífaldað vinsældir landsins meðal ferðamanna

Merkilegt nokk hefur engum ferðaþjónustuaðila dottið í hug að endurgreiða stjórnvöldum þá fjárhæð eftir að ljóst varð fljótlega að gosið og hamfarirnar í kjölfarið voru þvílíkur segull á ferðamenn að aldrei hefur neitt áður sést.

En milljarðs króna Inspired by Iceland átakið skilaði þegar upp var staðið aðeins tæplega 70 þúsund „like“ á fésbókinni og þar af voru 20 þúsund íslensk. Það er hræðilega lítið.

Sömuleiðis voru yfirvöld í Kasakstan lítt hrifin þegar kvikmyndin um kazanska fréttamanninn Borat eða Borat: Cultural Leanings of America for Make Benefit Glorious Nation Kazakhstan var sýnd árið 2006. Í þeirri kvikmynd var landið sýnt í afskaplega dökku ljósi og Borat afturhaldsseggur dauðans.

Fáir veittu því þó athygli fyrr nýlea, mörgum árum eftir að kvikmyndin kom út, að utanríkisráðherra Kasakstan, Erzhan Kazykhanov, viðurkenndi fyrir þarlendum fjölmiðlum að í kjölfar kvikmyndarinnar hefði orðið tíföld aukning á ferðamannastraumi til landsins. Þakkaði ráðherrann Borat alfarið fyrir þá athygli.