Ferðaskrifstofan Ferð.is lofar allra bestu verðunum á flugi til Bangkok héðan frá Íslandi en á vef þeirra er flug frá Keflavík til Bangkok gegnum Frankfurt og til baka í boði alla daga ársins á 152 þúsund krónur. Reynist það 15 þúsund krónum ódýrara en helstu flugleitarvélarnar bjóða upp á miðað við leit ritstjórnar.
Fjölmargir Íslendingar fljúga til Tælands yfir vetrartímann en verð á ferðum þangað hafa hækkað duglega síðustu misserin. Fyrir ári síðan fékkst flug til og frá allt niður í 120 þúsund krónur frá Keflavík svo gjöldin hafa hækkað um 30 þúsund krónur milli ára.
Það er þó ekki til eftirbreytni að ferðaskrifstofan umrædda gefur engar upplýsingar á vef sínum hver stendur að baki fyrirtækinu. Undir liðnum „Um okkur“ er auð síða og er það vart ýkja traustvekjandi fyrir ferðalanga.
Heimasíða Ferð.is hér.






