Ó k. Engum er vorkunn ef viðskipti við Ferðaskrifstofu Íslands (Úrval-Útsýn, Plúsferðir og Sumarferðir) reynast byggð á sandi. Eins og dómstóll komst að raun um hér fyrr í vikunni.

Úrval-Útsýn kúkar yfir viðskiptavini og geldur fyrir.

Humm og jæja! Engar fréttir að við hér hötum stórsvindlarann Pálma Haraldsson og nú hafa þrettán aðrir Íslendingar bæst í hópinn 🙂

Ferðaskrifstofa stórsvindlarans Pálma Haraldssonar fór í mál við þrettán viðskiptavini veturinn 2020 til að þurfa ekki að greiða agnarögn til baka af þeim mikla hagnaði sem Íslendingar gefa þessum viðbjóðslega svindlara hugsunarlaust árin út og árum inn.

Lesa má um málið hér á vef RÚV en í grunninn þá neitaði Úrval-Útsýn að endurgreiða fargjöld þrettán einstaklinga sem kusu að fara ekki til Ítalíu þegar Covid-faraldurinn var farinn að gera usla þar ytra fyrir rúmu ári síðan.

Smekkmaður á fatnað og gleraugu en skítasvindlari samt. Skjáskot RÚV

Hundrað prósent eðlilegt við það. Hver vill ferðast til staða sem þykja vafasamir vegna víruss sem dregur mann og annan til dauða sísona?

En Úrval-Útsýn Pálma Haraldssonar drullusama um mannslíf. Ferðaskrifstofan harðneitaði endurgreiðslu fargjalds og bar fyrir sig formsatriði. Um tæpa milljón krónur um að ræða eða brotabrot af því sem fyrrnefndur Pálmi Haraldsson, sparaði sér á að selja sín bréf í íslenskum bönkum RÉTT FYRIR HRUNIÐ 2008.

Vafalítið mun skítasvindlarinn Pálmi Haraldsson skjóta málinu áfram til Landsréttar og svo áfram til Hæstaréttar þegar hann tapar þar líka. En ágætt fyrir fólk með skerta vitsmuni eða er sama um allt og allt að muna að Ferðaskrifstofa Íslands (Úrval-Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir) eru aldrei að fara að sýna viðskiptavinum einn einasta plús í kladdann…