Þann 25. ágúst síðastliðinn, fyrir 59 dögum, skoðuðum við hvað það kostaði að fljúga með Icelandair annars vegar og Play hins vegar til Salsburg í Austurríki í vikutúr í janúar annars vegar og febrúar hins vegar. Ástæðan sú að bæði flugfélög auglýstu, og auglýsa enn, að um sé að ræða skíðaferðir þó það sé tóm þvæla eins og lesa má um hér.
Látum það liggja í láðinni augnablik því við endurtókum verðtékkið okkar sem við gerðum þann 25. ágúst þennan daginn og niðurstöðurnar æði merkilegar.
Í ljós kemur að janúartúrinn: 22.-29. janúar er enn þokkalega á pari við það sem var í boði seint í ágúst. Bæði Icelandair og Play mikið til að bjóða sama lægsta verðið og þá var í boði.
En hólímólí hvað mikið hefur breyst í febrúartúrnum 5.-12. febrúar!
Flugfélagið Play, hvers forstjóri og stjórnarmaður hafa verið undir skattrannsókn í mörg ár fyrir hugsanlega brot, heimtar núna 38% meira fyrir skitin flugin þessa dagana og án nokkurs farangurs eða þjónustu. Það slæmt út af fyrir sig og algjör stínker miðað við flugfélag sem kallar sig lággjaldaflugfélag.h
En hvað hefur hið tugmilljarðakróna ríkisstyrkta skattaskjólselskandi Icelandair gert á sama tíma? Jú, þeir hafa hækkað nákvæmlega sömu ferð og þeir auglýstu í lok ágúst ódýrast á 43 þúsund krónur fram og aftur upp í 73 þúsund krónur!!!!!!
Það, gott fólk, er hækkun upp á 70 PRÓSENT hvorki meira né minna. Það á prumpfarrými með ekkert innifalið.
Er ekki mál til komið að snúa viðskiptum okkar annað? Hvað finnst þér?







