T öluverðu munar á fargjöldum Icelandair annars vegar og Play hins vegar til hinnar ágætu borgar Salzburg í Austurríki en bæði flugfélög bjóða þangað ferðir í janúar og febrúar á næsta ári.

Báðir aðilar auglýsa þessar ferðir sem „skíðaferðir” þó reyndar frá Salzburg sé að lágmarki eins og hálftíma keyrsla á næsta skíðasvæði og jafnvel lengur ef færð er leiðinleg eins og gjarna er raunin í Alpafjöllum yfir háveturinn. Við skoðuðum þetta nokkuð ítarlega á sínum tíma eins og lesa má um hér.

Stutt tékk okkar leiddi í ljós að flug með Icelandair er allnokkuð dýrara en með Play og hafa skal hugfast að hér um allra lægstu fargjöld að ræða án farangurs sem er líklega ekki góð hugmynd í janúar og febrúar. Þaðan af síður er skíðabúnaður innifalinn svo auðveldlega má bæta tíu til fimmtán þúsund krónum ofan á verðin í töflunni hér að ofan. Verðmiði með farangri plús skíði eða bretti per mann er því kringum 60 þúsund hjá Icelandair og 45 þúsund með Play fram og aftur.

Og þá á auðvitað eftir að komast á skíðasvæðin því hvorugt flugfélag býður neinar slíkar ferðir og því annaðhvort bílaleigubíll möst eða tímafrekt vesen með rútum og eða lestum. Að ógleymdri gistingu og skíðapössum sem kosta sitt á háannatíma.

„Skíðaferð” gegnum Salzburg gæti því orðið miklu dýrari en þú heldur. Betri hugmynd að sleppa brekkunum og njóta borgarinnar sjálfrar sem er súperfín heimsóknar.