Einn úr ritstjórn bjó í Ósló um árabil hér í denn tíð. Þá þótti afar móðins að taka ferju til Danmerkur og heim aftur og djamma báðar leiðir eins og það væri 1999 enda allt áfengi um borð á 50% lægra verði en í Noregi. Plús auðvitað að árið var 1999.
Þá tók líka hver túr tíu til þrettán stundir hvora leið eftir því hve hart var í sjóinn. Nú er öldin önnur.

Sigling milli Noregs og Danmerkur er góð skemmtun. Nú tekur það þriðjungi skemur en áður fyrr. Mynd Color Line
Skipafélagið Color Line, sem hefur lengi vel nánast haft einkaleyfi á siglingum milli Noregs og Danmerkur, hefur nú loks skipt út öllum gömlum döllum sínum yfir í nútímann. Það í orðsins fyllstu því nú er komist frá Osló eða Kristjánssandi til Hirtshals í Danaveldi, eða sömu leið til baka, á léttum þremur til fjórum stundum.
Ekki nóg með að túrinn atarna hafi styst um þriðjung eða svo heldur og kostar túrinn bara klink og ingenting miðað við fyrri tíð. Önnur leiðin fæst niður í ellefu þúsund krónur eða svo með smá fyrirvara. Ekki gefins neitt og sérstaklega ekki miðað við flugferðir lággjaldaflugfélaga en víðs fjarri þeim rúmum tuttugu þúsund krónum sem önnur leiðin kostaði hér fyrir fáeinum árum. En ólíkt því sem gerist í níðþröngum sætum lággjaldaflugfélaga er nóg pláss á döllum Color Line til að njóta lífs og jafnvel sletta úr klaufum líka. Það er þess virði að spreða aðeins aukalega…
Heimasíða Color Line hér.







