Íslensku ferðaskrifstofurnar með putta á púlsi landsmanna. Velflestar innlendar ferðaskrifstofur með þétta ferðapakka strax frá næsta vori og stöku nýir áfangastaðir með.

Borgin Almería í Almeríu. Gott að vera en sumrin eru heitari en andskotinn.

Við segjum putta á púlsi sökum þess að fjölmargir ferðaglaðir Íslendingar geta ekki beðið eftir að komast út án þess að eiga sóttkví eða sýkingu á hættu. Ýmislegt bendir jafnvel til þess að góð bóluefni verði orðin að veruleika innan fárra mánaða. Þá halda okkur engin bönd 🙂

Að því sögðu er harla ólíklegt að allir þessir vinsælu áfangastaðir verði alveg galopnir eins og síðustu árin. Jafnvel bóluefni sem er 100% – og ekkert þeirra sem kynnt hafa verið hingað til ná þeim árangri – mun aldrei ná til allra á þessum slóðum fyrir vor og sumar. Ekkert frekar en hér heima.

VITA

Ferðaskrifstofa Icelandair, Vita, ætlar að bjóða ferðir til helstu sólarstaða í beinu flugi næsta vor og sumar. Almería, Tenerife, Lanzarote, Krít, Costa del Sol og Algarve í boði fyrir sólþyrsta. Það dável boðið í miðjum heimsfaraldri en vonir standa auðvitað til að þeim hörmungum linni þegar líða fer á næsta vor og sumar. Ella er margt fyrir bí því það er ekkert spennandi að eyða sumarfríinu í sóttkví á skitnu hóteli fremur en hanga heima við.

Vita ennfremur að bjóða upp á tvær ferðir til Madeira í maímánuði. Annar túrinn aðeins fjórir dagar sem er súperkjánalegt. Ekki aðeins sökum þess að flug til og frá eru tæpir sex tímar hvora leið heldur og sökum þess að enginn tekur inn stemmara eyjaskeggja á þeim tíma. Þú varla komin á hótel af flugvellinum fyrr en dvölinni er lokið.

Hinn túrinn, átta dagar, öllu vænlegri og ekkert minna en þessi stórkostlega eyja á skilið. Gríðarleg náttúrufegurð, gönguslóðar á heimsmælikvarða, kostur og gisting í ódýrari kantinum og jafnvel tiltölulega lokað heimafólk opnar sig fljótt við bros og vingjarnlegheit. Hér má lesa allt það helsta um höfuborgina Funchal og hér um það helsta dásamlega á eynni.

ÚRVAL ÚTSÝN

Það líka uppi typpið á ferðafrömuðum Úrval-Útsýn í Kópavoginum næsta sumar. Tenerife vitaskuld á dagskrá og Gran Canaría líka en sá síðarnefndi bara þúsundfalt ljúfari áfangastaður en Lanzarote. ÚÚ býður einnig Almeríu og það sem kannski er mest um vert: Alicante. Á þeim síðastnefnda eru einu Íslendingabyggðirnar utan Íslands og þúsundir eiga þar eignir.

HEIMSFERÐIR

Hjá bankafyrirtækinu Heimsferðum er svipað uppi á tening. Kanarí, Alicante, Costa del Sol og Krít. Fyrirtækið ennfremur að auglýsa sérferðir til heillandi staða í Króatíu, Slóveníu og Tékklandi en við leit að þeim ferðum á vef fyrirtækisins fannst ekki neitt og ekki hægt að bóka. Sem segir okkur að fara varlega í að bóka þær ferðirnar og kannski ekki síst vegna þess að fyrirtækið er í söluferli. Seljandinn væntanlega ekki með ermar upp brettar að gera vel við viðskiptavini vitandi að sala stendur fyrir dyrum.

Á EIGIN VEGUM

Mörg okkar, við meðtalin, höfum ekki minnsta áhuga á geldum pakkaferðum á sömu, þreyttu áfangastaðina. Við höfum ennþá val en æði takmarkað miðað við það sem verið hefur undanfarin ár.

Þegar þetta er skrifað er flugfélagið Norwegian alveg á nippinu að fara yfir um. Mikið má ganga á ef takast á að bjarga þeim því miður.

En sömuleiðis eru enn nokkur flugfélög að bjóða ferðir langt fram á næsta ár. Flugfélög á borð við Icelandair, easyJet, Wizz Air, Transavia, Finnair, SAS, Vueling og AirBaltic. Norwegian líka enn að bjóða beint flug til príma áfangastaða á borð við Alicante með vorinu en ágætt að hafa í huga að engar líkur eru á endurgreiðslu fargjalds ef það ágæta flugfélag fer yfir um áður en þar að kemur.

KALT MAT

Það freistar meira en eplið Evu að smella sér á einhvern ferðapakka þessi dægrin. Kalt og dimmt útivið á klakanum og verður það næstu þrjá mánuðina hið minnsta. Margir langþreyttir á inniveru, makinn leiðinlegri en þig nokkurn tíma grunaði og ekki hjálpar að þrítug börnin eru enn í kjallaranum.

En það verður að segjast að þeir peningar sem fara í flug eða ferðir í dag gætu vel tapast alveg áður en lóan kemur að syngja inn vorið. Fúlheit er eitt en að tapa tugum eða jafnvel hundruðum þúsunda ef flugfélag eða ferðaskrifstofa fer yfir um næstu misserin er súrara en hundasúra í mykjuhaug. Því líkurnar á endurgreiðslu til viðskiptavina ef allt fer yfir um eru litlar sem engar.

Best að bíða framyfir áramót áður en lagt er á ráðin um vorið og sumarið 😉