Þeim fjölgar hægt og bítandi flugfélögunum sem fella niður sérstök eldsneytisgjöld. Nú síðast Virgin Australia og búist er við að helsti samkeppnisaðilinn Quantas fylgi fordæminu á næstu dögum. Þau bætast þá í hóp flugfélaga eins og Cebu, Emirates og Qatar Airways sem slíkt hafa einnig gert að undanförnu.

Þróun kostnaðar fyrir þotueldsneyti á mörkuðum síðustu mánuði. IATA

Þróun kostnaðar fyrir þotueldsneyti á mörkuðum síðustu mánuði. IATA

Ástralir geta því glaðst aðeins að því er fram kemur á vef USA Today sem segir að miðaverð yfir línuna lækki sem nemur frá fjórum til átta þúsund krónum.

Víða um veröld er mikið rætt um hvers sein flugfélög eru að lækka eða afnema eldsneytisgjaldið enda nú næstum hálft ár síðan verð á eldsneyti fór að taka dýfu sem enn sér ekki fyrir endann á. Samkvæmt töflu IATA, alþjóðasamtaka flugfélaga, er verð á þotueldsneyti nú komið í sömu lægð og byrjun árs 2009 andartaki eftir efnahagskrísuna í lok árs 2008.

Að einhverju leyti helgast það af birgðum flugfélaga sem flest kaupa eldsneyti marga mánuði fram í tímann og gera sínar viðskiptaáætlanir út frá því. Icelandair hefur til að mynda lækkað eldsneytisgjald sitt nokkuð og ekki útilokað að það lækki frekar.

En svo er annað sem kannski hangir hér á spýtu almennt hjá þeim sem ekki hafa breytt neinu. Það er sú staðreynd að það er nokkur uppgangur í flugheimum og gott að gera hjá mörgum flugfélögum. Með öðrum orðum þá er engin ástæða til að lækka eða fella niður eldsneytisverð ef vélarnar eru fullar af fólki öllum stundum hvort sem er. Það þýðir bara enn feitari bankabók og það er jú það sem flest fyrirtæki ganga út á.