Nú þegar vetur konungur er farinn að banka alvarlega á dyrnar hér heima er til margt verra en tryggja sér flug eða ferðir eitthvað út í heim og hafa eitthvað að hlakka til. EasyJet hjálpar aðeins til. Þar eru nú fargjöld niður í sex þúsund krónur á mann hingað og þangað um Evrópu.

Sértilboð með easyJet næstu mánuðina. Mynd Clement Alloione

Sértilboð með easyJet næstu mánuðina. Mynd Clement Alloione

Tilboð Bretanna gildir um ferðir strax frá 14. desember og fram til júníloka á næsta ári. Kjörin leið til að sýna fyrirhyggju því nú þegar easyJet flýgur reglulega til og frá Íslandi er afar auðvelt að fljúga með þeim áfram lengra en til Bretlands eða Sviss.

Til dæmis er komist á þessu tímabili til Mallorca frá Englandi fyrir sex þúsund krónurnar. Sama verð til Malaga á suðurströnd Spánar. Nú ekki er síðra að prófa að skoða hinu fögru Slóveníu fyrir sama verð eða Napolí og Cagliari á Ítalíu.

Hér um aðra leið að ræða miðað við tvo saman en séu þessir áfangastaðir samtvinnaðir við ferðir til og frá Íslandi, sem finnast lægst kringum níu þúsund krónur þegar þetta er skrifað, kostar túrinn allur um 30 þúsund á kjaft án farangurs.

Finna svo topphótel á botnverði hér að neðan og voilà, toppferð til að hlakka til. Hér ágætt að nefna að með svo miklum fyrirvara eru hótelin við Miðjarðarhafið á allt að 40% lægra verði en þegar nær dregur.

EasyJet hér.