Ritstjórn Fararheill hefur fengið töluverðan fjölda bréfa með óskum um aðstoð við að heimsækja góða jólamarkaði á verði sem fær fólk ekki til að gapa af angist. Það höfum við gert með glöðu geði. En nú fellur skuggi á allt saman.

Oft er það ekki aðeins fallegur varningur sem heillar við jólamarkaði heldur og þessi vinalega stemmning. Það gæti breyst.
Við þekkjum alla þessa frægu jólamarkaði í Vín, Prag, Köln og Strassborg. Stórkostlegar borgir og ekki leiðinlegt að hanga þar yfir nýbökuðum piparkökum, ristuðum hnetum og jólaglöggi nokkra daga eða svo.
Það allra besta við slíka markaði er að það svífur þess konar andi yfir vötnum að jafnvel grautfúlt fólk sem gengur um með samansaumaðar varir 364 daga ársins á það til að brosa á jólamörkuðum og jafnvel taka vel í vinalegt spjall.
En nú syrtir í ál. Samkvæmt þýskum miðlum á að stórauka eftirlit og gæslu lögreglu með vinsælum jólamörkuðum þar í landi fram að jólum og það jafnvel með hermönnum þyki lögregluyfirvöldum ástæða til.
Fullyrða má að sé þetta raunin í Þýskalandi munu önnur lönd mið-Evrópu grípa til sömu ráðstafana fyrr en síðar. Ástæðan er hið sjálfskipaða ríki Íslams og hryðjuverkaárás þeirra í París. Enginn vill jú blóðbað og sennilega allra síst á jólamörkuðum.
Mínusinn auðvitað sá að það getur verið flókið að slaka á og njóta nokkurs hlutar ef þaulskjaldaðir lögreglumenn, jafnvel vopnaðir árásarrifflum, vappa líka milli markaðsbása. Svo ekki sé talað um hermenn. Slökun er eiginlega ekki flókin, hún er vonlaus.







