Dreymi fólk um lengri ferðalög en vestur um haf eða innan Evrópu er ráð að bregða sér inn á vef flugfélagsins Emirates. Þar hefur flugfélagið tímabundið slegið af allt að 30% af langferðum sínum.
Bóka þarf fyrir 23. mars næstkomandi en geri fólk það er hægt að fljúga vítt og breitt fyrir æði lágt verð miðað við fimm stjörnu flugfélag.
Dæmi um það er fram og aftur til Bangkok í Tælandi niður í 106 þúsund krónur, fram og aftur til Chennai á Indlandi niður í 98 þúsund krónur eða alla leið til Perth í Ástralíu fyrir 140 þúsund á mann.
Í þessu sambandi er ágætt að hafa í huga í viðbót að sætisbil er að lágmarki 32 tommur á almennings farrými hjá Emirates og stundum 33 eða 34 tommu eftir vélum. Það er algjört lágmark á svo löngum leiðum og bein nauðsyn fyrir marga sem komnir eru á aldur.







