Icelandair býður nú tímabundið svokallað jólatilboð til Orlando á Flórída en þar er um að ræða annars vegar fjögurra nátta ferðir þa sem síðasta nóttin er frí og hins vegar flug fram og til baka.
Auglýsing Icelandair hljóðar svona:
Bjóðum mjög góð tilboð til Orlando í janúar og febrúar 2011. Annarsvegar er um að ræða pakkaferð þar sem fjórða nóttin á hóteli miðsvæðis er frí og hinsvegar gott flugtilboð.
Flugtilboðið er til sölu frá og með 30. desember og kostar þá flug báðar leiðir frá 11. janúar til 1. mars 54.900 krónur.
Gistitilboðið er miðað við Extended Stay hótelið á Vineland Road við International Drive. Eru það fjögurra nátta ferðir á 69.900 á mann. Hótelið er allbærilegt og í 107. sæti af 340 hótelum alls í Orlando samkvæmt Tripadvisor. Gildir þetta tilboð einnig frá 11. janúar til 1. mars.








