Samkvæmt bandarískum fjölmiðlum er loftferðasamningur milli Kúbu og Bandaríkjanna á lokastigi en sá er nauðsyn til að hægt sé að hefja reglulegt millilandaflug milli ríkjanna.

Líklegt er að Bandaríkjamenn komist reglulega til Kúbu strax á næsta ári. Mynd Doug Wheeler

Líklegt er að Bandaríkjamenn komist reglulega til Kúbu strax á næsta ári. Mynd Doug Wheeler

Ár er nú síðan sögulegar sættir urðu í samskiptum Kúbu og Bandaríkjanna en síðan hafa stjórnvöld ríkjanna unnið að því að koma samskiptum öllum á nútímalegt og eðlilegt stig. Strandar þar töluvert á Guantanamo fangelsi Bandaríkjamanna sem hafa eignað sér þann skika Kúbu um áratugaskeið án nokkurs tillits til heimamanna.

Smærri ferðaþjónustuaðilar hafa um þriggja mánaða skeið getað boðið upp á takmarkað úrval flugferða frá Flórída og til Havana og það notið vinsælda enda fjölmargir áhugasamir um Kúbu og menningu eyjaskeggja. En stóru flugfélögin hafa þurft að bíða formlegs samkomulags sem nú er sagt í sjónmáli.

Það má því líklega gera ráð fyrir að bandarískir ferðamenn verði algeng sjón á Kúbu fljótlega á nýju ári. Það líka gerir okkur Íslendingum kleift að fljúga til Kúbu með millilendingu í Bandaríkjunum en margir hafa hingað til þurft að fljúga gegnum Kanada til þess. Má nánast slá því föstu að verðlag á eynni muni hækka nokkuð skarpt strax í kjölfarið fyrir ferðafólk. Bandaríkin jú risamarkaður og augljóslega mikill áhugi á Kúbuferðum þar í landi.