Tíðindi

Sekta Icelandair um sex milljónir

  22/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Icelandair þarf að greiða rúmlega sex milljóna króna sekt til bandarískra yfirvalda fyrir að auglýsa fargjöld án allra aukagjalda.

Auglýsti flugfélagið íslenska í Bandaríkjunum haustið 2011 fargjöld sín til Íslands og Evrópu en tiltók ekki bókunar- og aukagjöld sín og auglýsti því ekki full verð eins og lög í Bandaríkjunum kveða á um.

Kemur þetta fram á vef bandarísku neytendasamtakanna Consumer Affairs en talsmaður Icelandair segir að sökin liggi hjá auglýsingastofu fyrirtækisins en ekki flugfélaginu sjálfu.

Auglýsti Icelandair fargjöld til Evrópu fyrir 429 dollara í haust en lét hjá líða að geta þess að það verð væri fyrir utan skatta og önnur gjöld.

Fyrir slíkt eru fyrirtæki sektuð vestur í Bandaríkjunum ólíkt því sem gerist hér á landi. Þarf flugfélagið að punga út helmingi upphæðarinnar á næstu 30 dögum til að sleppa við fulla sekt að því gefnu að ekkert slíkt endurtaki sig næsta árið.