Skúli Mogensen virðist lítinn áhuga hafa á að bæta þjónustu flugfélags síns við viðskiptavini. Fjögur ár nú liðin síðan Wow Air fór í jómfrúarferðina og enn streyma inn færslur á samfélagsmiðlum um sömu vandamálin og vesenið og fólk lenti í þá.

Þetta er varla flókið. Hafi fyrirtæki áhuga að bæta þjónustu sína þá bætir það þjónustu sína.

Víst hefur Wow Air nýverið gert samning við indverskt fyrirtæki um símsvörun en það tók fjögur ár og ef marka má minnst eina færslu á fésbókarvef flugfélagsins eru Indverjarnir ekkert að stressa sig of mikið að taka upp tólið þegar eitthvað bjátar á hjá farþegum Wow Air.

leik

Ólafia Hrönn Jónsdóttir, leikkona, er þolinmóð með afbrigðum ef marka má færslu hennar hér að ofan. Búið að grilla kreditkortið hennar hjá Wow Air en hún enn ekki með flugmiða í höndum. Fær engu að síður tilkynningu um að flug hennar tefjist. Absolut galin þjónusta og það tók samfélagssérfræðinga Wow Air tvær klukkustundir að svara þessu skeyti.

En leikkonan íslenska er ekki sú eina sem nær engu sambandi við Indverjana:

indHey, en kannski stafa þessi vandamál af því að enginn í Indlandi talar íslensku? Nei, vandamálið útbreiddara en svo ef marka má þessa pósta:

ind2

ind4

ind5

Við gætum haldið áfram en lesendur hafa líklega áttað sig á þjónustuskorti Wow Air. Þörf á að sparka í indverska rassa í símaverinu því þetta er fyrir neðan allar hellur.