Úllala segjum við bara. Íslenska landsliðið etur kappi við það enska á mánudagskvöld í Nice í Frakklandi og landinn er að fara á hjörunum að vitna það eigin augum.

Aldrei gefa upp vonina (frekar en landsliðið okkar). Mynd Mike
Strákarnir okkar að gera gott mót í Frans og eðli málsins samkvæmt vilja allir í partíið. Það fer fram í strandborginni Nice á mánudagskvöld en partíið hefst öllu fyrr ef við þekkjum okkar fólk rétt og gæti jafnvel verið framlengt ef svo vill til að enskir eiga ekki roð í okkar fólk á vellinum
Hvorki Icelandair né Wow Air geta boðið upp á beint flug til Nice með svo skömmum fyrirvara þrátt fyrir fregnir þess efnis að aukavélar yrðu mögulega í boði til að lóðsa þær þúsundir landsmanna sem vilja sjá sínar eigin hetjur og jafnvel sínar ensku hetjur í einum og sama leiknum.
Hvað gera bændur og fótboltafíklar þá?
Það eru ýmsar leiðir til að komast en hafa þarf fyrir. Fjölmörg flugfélög, þar með talin Icelandair og Wow Air, fljúga til borga sem ekki eru neitt frámunalega langt frá Nice. Aðalatriðið er að komast til meginlandsins og þá opnast allar gáttir að rúlla sér alla leið til Nice. Hvort sem er frá Barcelóna, Dusseldorf, Róm eða jafnvel London er ekki flókið að fljúga eða aka til Nice og ná leiknum og stemmaranum með. Frá mörgum borgum er beint flug til Nice og rúturnar í Evrópu eru ekki af verri endanum heldur ef langleið þarf að fara.
Hvað með gistingu?
Jú, hún er í dýrari kantinum. Ekki þó vegna þess að Ísland og England etji kappi heldur meira vegna þess að Nice er mjög vinsæll sumarleyfisstaður og hótel og gistihús bókuð þar með löngum fyrirvara. Ofan á það bætast nú tugþúsundir Íslendinga og Englendinga.
Hér að neðan má finna þau hótel eða gistihús sem enn eiga laus rúm. Sjálfsagt er að tékka Airbnb og HomeAway líka fyrir leiguíbúðir. Í algjöru hallæri má kaupa Rúmfatalagerstjald og planta rassi á tjaldsvæði Nice. Aldrei leiðinleg stemmning á tjaldsvæðum ef út í það er farið.







