Tíðindi

Samkynhneigðum í kot vísað

  04/04/2012mars 23rd, 2021No Comments

Hverjum hefði dottið í hug að það lægi við borgararstyrjöld í Belgrad í Serbíu vegna þess að stjórnvöld þar leyfðu samkynhneigðum að halda Gay Pride? Það var engu að síður raunin og hefði lögregla ekki verið við öllu viðbúin er hætt við að hommar og lesbíur hefðu fengið að finna fyrir reiði þúsunda á eigin skinni.

Því miður er það enn svo mjög víða um heiminn að samkynhneigð er ekki aðeins litin hornauga heldur hreint og beint ólögleg og í stöku löndum er það dauðasök að sýna einhverjum af sama kyni blíðuhót.

Listinn yfir þau lönd er hér fyrir neðan og hann kemur eflaust mörgum á óvart. Eins og uppþotin í Belgrad sýna er samkynhneigðum víða annars staðar almennt úthýst þó það stríði ekki gegn lögum.

Hommar og lesbíur hafa því ekki jafn mikil val og við hin þegar kemur að ferðalögum á nýja og spennandi staði.

DAUÐASÖK

Máritanía, Sádí Arabía, Sameinuðu Arabísku Furstadæmin, Yemen, Íran

FANGELSISVIST OG/EÐA SEKT

Alsír, Líbía, Marokkó, Túnis, Gambía, Ghana, Gínea, Nígería, Senegal, Sierra Leone, Tógo, Angóla, Kamerún, Sao Tóme & Principe, Búrúndí, Comorros, Eritrea, Kenía, Máritíus, Seychelles eyjar, Sómalía, Úganda, Tansanía, Zambía, Zimbambwe, Botswana, Lesóthó, Namibía, Swaziland, Belís, Antigua, Barbados, Dominíka, Grenada, Jamaíka, Saint Kitts & Nevis, Saint Lúcía, Saint Vincent & Grenadines, Trinidad & Tobago, Guyana, Turkmenistan, Úsbekistan, Kúveit, Líbanon, Óman, Palestína, Katar, Sýrland, Afganistan, Bangladesh, Maldives eyjar, Pakistan, Brúnei, Burma, Malasía, Singapor, Papúa Nýja Gínea, Sólómon eyjar, Kiribati, Cook eyjur, Tonga, Tuvalu.