Tíðindi

Beint millilandaflug til Ísafjarðar?

  04/04/2012No Comments

Það þætti merkileg saga til næsta bæjar ef erlend flugfélög tækju upp á því að bjóða millilandaflug milli Denver í Bandaríkjunum og Ísafjarðar á Íslandi. En það er sannarlega í boði samkvæmt kynningu hjá einum stærsta ferðasala vestanhafs.

Samkvæmt erlendri vefsíðu eru í boði bein flug milli Ísafjarðar og Bandaríkjanna sem er vitaskuld tóm steypa. Mynd af vef FMS

Er það vestfirski fréttamiðilinn BB.is sem greinir frá því að á vef ferðaskrifstofunnar Montrose Travel séu í boði og auglýst sérstaklega flug á besta mögulega verði milli Denver í Kolóradó og Ísafjarðar.

Þó á vef Montrose sé mikið gert úr þekkingu starfsmanna og hversu mikla reynslu þeir hafa af skipulagningu ferða er óhætt að draga það í efa enda stendur ekki til hjá neinu flugfélagi að hefja beint flug milli Denver og Ísafjarðar.

Í fyrsta lagi ræður hinn ágæti flugvöllur Ísafjarðar illa eða ekki við stórar farþegaþotur en í öðru lagi er bærinn, og reyndar landsfjórðungurinn, of fámennur til að beinar flugferðir geti mögulega borgað sig.

Engu að síður skemmtileg tilhugsun og ekki síður gaman að lesa auglýsingu Montrose Travel sem er léleg steypa út í eitt.

Book your cheap flight from Isafjordur to Denver with us and save! We work hard to make sure you will find the lowest possible price for your cheap flight from Isafjordur to Denver.

We are one of the largest travel agencies in the united states and truely enjoy helping customers find the best value for their vacation.

Book your flight online or call one of our knowledgeable travel counselors. We hope you enjoy your trip and we have the opportunity to be part of your travel plans.