Tíðindi

Samkeppni til Grænlands

  10/07/2010febrúar 12th, 2022No Comments

Samkeppni er alltaf af hinu góða og nú hefur Grænlandsflug, Air Greenland, hafið áætlunarflug milli Íslands og Nuuk annars vegar og Narsarsuaq hins vegar í beinni samkeppni við Flugfélag Íslands sem boðið hefur reglulega ferðir til Grænlands um nokkurra ára skeið.

Úttekt Fararheill.is leiðir í ljós að prísar þeirra grænlensku eru ósköp svipaðir enn sem komið er. Fæst ferð nú í sumar fram og tilbaka til Nuuk ódýrast á 78 þúsund krónur fyrir manninn sem er heilum þúsund krónum ódýrara en sams konar flug með Flugfélagi Íslands.

Reyndar verður að hafa í huga að bæða flugfélögin bjóða ódýrust sætin með löngum fyrirvara og því að hluta ómarktækt að bera saman verð næstu vikurnar.