Samkeppni hér heima tekur stundum á sig undarlegustu myndir. Bæði ferðaskrifstofan Úrval Útsýn og flugfélagið Icelandair auglýsa nú ferðir á næsta landsleik íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem fram fer í Ríga í Lettlandi í næsta mánuði. Ferðir beggja nákvæmlega eins og verðið nákvæmlega það sama. Ekki í fyrsta skiptið.

Ríga að kvöldlagi. Mynd Ricardo Liberado

Ríga að kvöldlagi. Mynd Ricardo Liberado

Það er samkeppni í orði en ekki á borði og minnir á samkrull Olís, N1 og Skeljungs hér fyrir margt löngu. Sami díll yfir línuna. Einhver hefði haldið að annar hvor aðilinn vildi bjóða betur en hinn enda tvö mismunandi fyrirtæki.

Annars er verðið, 90 þúsund krónur á mann miðað við tvo fyrir eina nótt plús miða á leikinn, í hærri kantinum. Þó ekki sé það alveg samanburðarhæft þá býður Norwegian flug frá Osló til Ríga og til Osló aftur á sama tímabili frá fjórtán þúsund krónum. Frá London er komist með Ryanair til Ríga og aftur fyrir rúmar tólf þúsund krónur. Miðar á leikinn fást á netinu vel undir tíu þúsund krónum og gisting á sæmilegu hóteli ætti varla að kosta meira en 15 þúsund alls.

Annars er Ríga ótrúlega merkileg borg þó andrúmsloftið þar geti verið þrúgandi eins og lesa má um í vegvísi Fararheill hér.