Fararheill fær reglulega fyrirspurnir frá fólki um það sem það kýs að kalla öðruvísi ferðir. Ferðir sem alla jafna eru ekki í boði til framandi áfangastaða eða eru frábrugðnar að einhverju leytinu. Kannski flakk um hina fjarlægu Ástralíu á húsbíl falli undir það.
Flugfélagið Etihad er ört vaxandi í heimi flugsins og þar boðið upp á nýja áfangastaði á vikufresti eða svo. Nýjasta leið flugfélagsins er til hinnar sólríku Perth á vesturströnd Ástralíu beint frá London og af því tilefni eru í boði nokkrar pakkaferðir þangað á lægra verði en ella væri raunin.
Ein slík ferð inniheldur flug til og frá Perth og á flugvellinum bíður fólks þessi líka ágæti húsbíll sem fólk hefur afnot af um níu daga skeið til að flakka um án þess að hafa áhyggjur af gistingu. Ótakmarkaðir kílómetrar og fullur tankur í þokkabót.
Sannarlega öðruvísi og verðið setur varla nokkurn á höfuðið heldur. Pakkinn kostar gegnum Flight Centre 190 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Plús þá flug til og frá Íslandi líka. Ekkert hræðilega dýrt fyrir óhefðbundið ferðalag og ekki bætist hótelkostnaður ofan á í þessum pakka.








