Flestir stóru fjölmiðlar landsins nota hvert tækifæri til að monta sig af hinu og þessu. Mbl.is mest lesni vefurinn, Fréttablaðið mest lesna dagblaðið í ákveðnum aldurshópi og fréttastofa Rúv nýtur allra mests trausts.

Magn eða gæði? Það er stóra spurningin. Meðallestur Fararheill vinstra megin og meðallestur Mbl hægra megin

Magn eða gæði? Það er stóra spurningin. Meðallestur Fararheill vinstra megin og meðallestur Mbl hægra megin

Allt er þetta gott og blessað þó ritstjórn Fararheill sé reyndar þeirra skoðunar að fyrirtæki eigi aldrei að monta sig opinberlega heldur láta heldur verkin tala. Endalaust hægt að rugla í fólki með prósentur og fátt eldist verr en skoðanakannanir. Svo rugla menn stundum saman magni og gæðum. Mikill fjöldi samsvari góðum lestri.

En stundum gleymist að þó Arnaldur eigi söluhæstu bókina um hver áramót er annar hver maður að skila eintaki af bók hans eftir jólin. Margir fá jú fleiri en eitt eintak. Staðreynd sem aldrei kemur þó fram í sölutölum.

Fararheill ætlar því að nota tækifærið og minna á að fjórða mánuðinn í röð erum við að mælast með betri lestur en allir stærstu fjölmiðlar landsins*

Í marsmánuði eyddi hver gestur okkar að meðaltali 8.37 sekúndum á vef okkar í hvert sinn. Til samanburðar höfum við sett tölur vefkönnunarmiðilsins Alexa fyrir Mbl.is sem er langstærsti vefur landsins fyrir sama tímabil. Vefur Mbl er lesinn að meðaltali rúmlega einni mínútu betur en Vísir eða DV samkvæmt sömu mælingu þegar þetta er skrifað. En líka tæplega einni mínútu skemur en Fararheill.is.

Fátt er yndislegra en vita að fólk finnur efni við hæfi þegar það fer inn á vef okkar því aðrar skýringar koma varla til greina hvers vegna pínulítill ferðavefur er best lesni vefur landsins og það mánuðum saman.

Takk fyrir okkur og njóttu vel!