Mörgum hugnast að þvælast á eigin farartæki um trissur Evrópu og þá fátt í stöðunni annað en bóka bílinn með í ferjuna Norrænu. Nýr bæklingur skipafélagsins kominn í hús og barasta þokkalegt verð fyrir að sigla sína leið til Danmerkur virðist vera.

Borgar sig að fara með bílinn til Evrópu með Norrænu? Það er spurningin.

Borgar sig að fara með bílinn til Evrópu með Norrænu? Það er spurningin.

Hjón eða par á sínum týpíska fjölskyldubíl kemst frá Íslandi til Danmerkur og til baka fyrir 149.000 krónur, 74.500 á mann, samkvæmt því sem fram kemur á forsíðu bæklings Norrænu ferðaskrifstofunnar. Það fer ekki í bækur sem hræbillegt en þó svipað verð og fyrir ári og sé miðað við að flug fyrir tvo fram og aftur kosti gróflega að meðaltali 60 þúsund krónur eða svo má reikna það svo að bíldruslan ein og sér kosti 90 þúsund krónur fram og aftur.

Hvort það borgar sig versus að taka bílaleigubíl á staðnum fer auðvitað eftir lengd ferðalagsins og tegund af bíl. Óhætt er þó að segja að 90 þúsund krónur greiði fyrir meðalstóran bílaleigubíl í Danmörku í þetta tíu til tólf daga.

En samanburðurinn fer á öllu verri veg fyrir siglt fólk ef ferðast er að sumarlagi. Það kemur nefninlega í ljós að þegar landinn getur helst og kýs að fara erlendis í sumarfrí í júlí og ágúst er allt annað verð í gildi. Þá kostar það sama par 199.000 krónur að flakka yfir hafið og heim með Norrænu. Það er sem sagt 50 þúsund krónum dýrara en fram kemur á forsíðu bæklingsins. Þó er sá bæklingur stútfullur af sumarlegum myndum af fáklæddu fólki í lautarferð og sól skín í heiði.

Það er því að óþörfu verið að kasta ryki í augu fólks hér. Fáir hafa gaman af því að rúnta um dumbungslega Danmörku í apríl þegar það kostar „aðeins“ 74.500 krónur á kjaft. Og hvar eru þá dumbungslegu myndirnar sem ættu að fylgja. Það er nefninlega enginn fáklæddur í lautarferð að sleikja sól í apríl neins staðar í Danmörku. Kannski á Möltu en það er dálítið sunnar og Norræna siglir ekki þangað.

Þetta er samsvarandi því að í bæklingi Elko væri mynd af þeirra flottasta ískáp en verðið fyrir neðan tæki mið af allt öðrum ískáp. Einhver gæti fett fingur út í svoleiðis.