Ekki fyrir svo löngu síðan fengu Leifsstöð og Keflavíkurflugvöllur rós í hnappagat þegar völlurinn var valinn besti flugvöllur Evrópu með færri en tvær milljónir farþega. Var þetta í annað skipti sem völlurinn hlaut slíka útnefningu en að valinu stóðu farþegar á leið um stöðina.
Ritstjórn Fararheill hefur áður og setur á nýjan leik spurningarmerki við þessar niðurstöður. Kannski er það eintómt skilningsleysi en ef öllu er á botninn hvolft er Leifsstöð og reyndar allir flugvellir heims ekkert annað en biðstöðvar og verslunarmiðstöðvar.
Eflaust má gera ágæt kaup á vörum inn á milli í Leifsstöð en á móti kemur að kostnaður við aumar fransbrauðssamlokur skjagar langleiðina í árslaun verkamanns og það þrátt fyrir samkeppni innan stöðvarinnar.
Þá hafa yfirmenn Leifsstöðvar aldrei nokkurn tíma leyft verðkönnun utanaðkomandi að fara þar fram.
Fleira athugavert má til telja. Biðraðir við innritun og öryggishlið eru á annatímum engu minni en á stórum erlendum flugvöllum, engin færibönd flytja fólk milli stöðvarhúsa þó vegalengdin sé talsverð og þangað er fólk oft á tíðum sent þó næstu útgangar við aðalbygginguna séu lausir.
Hafa skal í huga að gert er ráð fyrir gríðarlegri aukningu ferðamanna til og frá landinu næstu árin og hætt er við að þá verði barist um þau fáu sæti sem í Leifsstöð eru í viðbót við enn lengri raðir við innritun og öryggishlið.
Þá fór afar lítið fyrir annarri útnefningu sem Leifsstöð hlaut á síðasta ári. Á vefnum Sleepinginairports.net er stöðin sú þriðja versta meðal þeirra sem þátt tóku í könnun þess miðils.
Og einhverjir lesendur Fararheill eru einnig á þessari skoðun samkvæmt vefkönnun því þar er aðeins rétt rúmur helmingur, 53 prósent, á þeirri skoðun að Leifsstöð sé framúrskarandi. 35 prósent telja að hann sé í meðallagi eða hvorki góður né slæmur og 12 prósent telja Leifsstöð hreint og beint glataða. Alls greiddu 216 atkvæði.
Fararheill þakkar þátttökuna og bendir á að ný könnun er komin á vefinn.






