Þ rátt fyrir gríðarlega fjölgun erlendra ferðamanna hér á ballarhafsklakanum er sá fjöldi hlægilegur með tilliti til hvað íbúar vinsælla stórborga erlendis þurfa að þola. Fjöldinn til dæmis kominn langt yfir þolmörk Rómverja og borgaryfirvöld gripið til aðgerða. Aðgerða sem ágætt er að þú vitir af.

Á háannatímum geta allt að því 80 þúsund manns reynt að troða sér til að skoða hinn fallega Trevi-brunn í Róm. Það segir sig sjálft að það er 70 þúsund manns of mikið af því góða.
Við hér höfum fullan skilning á að íbúar hinnar og þessarar borgarinnar hafi fengið sig fullsadda af ferðafólki í tonnavís. Enginn vafi leikur á að túrismi færir mörgum tekjur en öllu má ofgera og líklega besta dæmið Feneyjar en borgin hefur á aðeins fimmtán árum misst frá sér 60 prósent allra íbúa sinna vegna fjöldatúrisma. Hún er næstum innantóm skel borgin sú þegar þetta er skrifað.
Borgarstjórn Rómar fær duglegan skammt af kvörtunum frá íbúum daglega vegna ágangs ferðafólks og ólíkt mörgum öðrum borgarstjórnum þá hefur borgarstjórnin tekið í tauma þó ferðaþjónustuaðilar kvarti og kveini. Borgarstjórnin þar er nefninlega, ólíkt því sem gerist víða annars staðar, raunverulega að vinna fyrir fólkið í borginni en ekki fyrirtækin í borginni.
Seint á síðasta ári fullgilti borgarstjórn Rómar ýmsar reglur sem höfðu lengi verið á bókum en ekki framfylgt og taka sérstaklega til ferðamanna. Nokkrar þær helstu eru:
A) Áfengi ekki lengur selt í verslunum eða sjálfsölum eftir klukkan 19 á kvöldin. Barir og næturklúbbar verða að hætta sölu áfengra drykkja klukkan tvö að nóttu.
B) Blátt bann við því að klæðast rómverskum herbúningum á götu úti.
C) Óheimilt að neyta skyndibita við helstu kennileyti borgarinnar.
D) Stranglega bannað að rölta um ber að ofan.
E) Óheimilt er að draga ferðatöskur á hjólum um stræti borgarinnar.
F) Hvers kyns söngur og væl á götum úti eftir miðnætti bannað með öllu.
G) Blátt bann við að nota gos-eða vatnsbrunna borgarinnar til að kæla sig á nokkurn máta.
Reglurnar eins og klæðskerasaumaðar fyrir mökkölvaðra Breta sem komast til Rómar með flugi allt niður í tvö þúsund krónur og hafa því fjölmennt til ítölsku höfuðborgarinnar til að drekka ódýrt og valda ónæði eins og þeim er einum lagið.
Ferðalög verða aldrei skemmtileg ef gestir til borga og áhugaverðra staða eru með læti og lítilsvirðingu nema hvort tveggja sé. Sé hugmyndin að verða ölvuð og skapa usla er kannski ráð að gera það bara heimavið og spara þannig drjúgan skilding. Enginn áfangastaður neins staðar á að þurfa að setja strangar reglur um framkomu og hegðun fólks. En því miður virðist sirka helmingur mannkyns vera fávitar út í eitt þegar stigið er á erlenda grund.







