Íran sennilega ekki á óskalista margra sem áfangastaður. Nema auðvitað viti bornu fólki sem gerir sér ljóst að það fallega land fær afar ósanngjarna útreið í vestrænum fjölmiðlum. Nú er þangað komist, næstum lóðbeint frá Keflavík, fyrir svo lítið sem 60 þúsund krónur fram og aftur.

Í næststærstu borg Íran, Mashhad, er að finna Imam Reza moskuna sem er sú næststærsta í veröldinni.
Ókei, lóðbeint er nú kannski frjálslega farið með. Hér um að ræða flug til London, þaðan til Istanbúl áður en lokahnykkurinn er tekinn til Teheran, höfuðborgar Íran.
En þó hér sé um höfrungaflug að ræða og einhvern biðtíma í London og Istanbúl er lágmarksverð samt sem áður hrein snilld. Frá London og til aftur fæst þetta flug niður í rétt rúmlega 30 þúsund krónur miðað við gengi dagsins. Við komumst alla jafna til London og frá fyrir þetta 25 til 30 þúsund kallinn og þannig komumst við alla leiðina kringum 60 þúsund alls per mann. Svona svipað og að fljúga til og frá Egilsstöðum fyrir höfuðborgarbúa.
Ekki heldur verra að tilboðsfargjöld þessi, með tyrkneska lággjaldaflugfélaginu Pegasus, gilda á ýmsum dagsetningum frá næsta hausti og vel fram á næsta ár. Um að gera að skoða ef þú vilt skoða eitt forvitnilegasta landið í Mið-Austurlöndum. Nánar.







