Til að nýta afsláttinn þarf að bóka flug fram og til baka fyrir kl: 23:59, mánudaginn 1. október, 2018 og ferðast á tímabilinu 1. október, 2018 – 10. febrúar, 2019. Afsláttur gildir aðeins á flugi frá Íslandi á fyrir fram völdum dagsetningum innan ferðatímabils (ekki af heimflugi, sköttum og bókunargjaldi).

Ekki amalegt þetta. En við finnum ekki neitt…

Wow Air Skúla Mogensen aðeins að ná vopnum sínum aftur eftir fjárhagslegan niðurgang síðustu misserin. Viti borið fólk gæti talið slík tímamót aldeilis góðan tíma til að hætta fiffi og fíflagangi og fara að bjóða það sem kallast alvöru þjónusta og bera virðingu fyrir viðskiptavinum.

En nei! Best að halda áfram að vera með leiðindi út í eitt.

Leiðindi þessa dags tengjast auglýsingu Wow Air um risaútsölu á flugferðum næstu dagana. Hvorki meira né minna en 40% afsláttur til allra áfangastaða flugfélagsins langt fram eftir vetri svo lengi sem þú bókar flugið eigi síðar en 1. október.

Hljómar spennandi ekki satt. En eins og alltaf með fyrirtæki herra Mogensen þá þarf gaumgæfilega að rýna í smáa letrið því 100 prósent líkur eru á því að fúll-á-móti hangi á spýtu.

Kíktu aftur á fyrstu þrjár línurnar í þessari grein. Það er smáa letur Wow Air varðandi 40% afslátt af flugi með kóðanum WOWSALE. Bóka þarf flug á tilteknum tíma og borga fyrir tiltekinn tíma og flugtímabil er vítt og breitt langt fram á veturinn. En þá eru góðu fréttirnar búnar. Síðan segir að afsláttur eigi AÐEINS við um útflug frá Keflavík og AÐEINS á völdum dagsetningum!!!

Með öðrum orðum þá gildir flottur afslátturinn aðeins um flugið út en ekki heim aftur. Ók, það kannski príma mál ef við ætlum nú bara aðra leiðina til Tene eða London ekki satt?

Neibbs. Það eru engin afsláttarkjör AÐRA LEIÐINA heldur AÐEINS ef bókað er bæði fram og aftur!!! Alls enginn afsláttur ef þú ætlar bara aðra leiðina út. Og eins og lesendur okkar vita þá kosta heimflug Wow Air undantekningarlaust töluvert meira en útleiðir.

Ók, það herfilega lélegt út af fyrir sig. Jafnvel verra að hvergi á bókunarvef Wow Air kemur fram á HVAÐA VÖLDU DAGSETNINGUM tilboðið nær yfir. Við hér búin að þaulskoða flug til og frá Tenerife, Boston og Frankfurt á umræddum tímabili og HVERGI var neitt sem gaf til kynna að um afsláttarfargjald væri að ræða. Við eigum sem sagt bara að leita og giska forevör.

Óhætt að slá föstu að ef Hagkaup auglýsir 40 prósenta afslátt en svo kemur í ljós þegar í verslunina er komið að þú verður bara að leita að vörum með þeim afslætti um alla verslun að samfélagsmiðlar myndu loga og líklega kæmi Neytendastofa viku síðar og segði skamm skamm.

En Wow Air kemst upp með allt saman eins og venjulega. Morgunljóst þó að flugfélagið eignast varla marga nýja aðdáendur á samfélagsmiðlum með þessu trixi.