Nú þegar Icelandair gerir sig út fyrir að vera svipað lággjaldaflugfélag og Wow Air væri eðlilegt að fargjöld þess væru á pari við Wow Air. Svo er þó ekki og ekki einu sinni á sérstökum hraðtilboðum.

Icelandair með nýtt hraðtilboð sem áhugasamir geta nýtt sér fram til morguns ef hugur leitar vestur um haf í vetur. Það út af fyrir sig gott og blessað. En tilboðin rýr í roðinu þegar grannt er skoðað.

Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef Icelandair er um nokkra staði í Bandaríkjunum og Kanada að ræða. Sem fyrr heldur flugfélagið áfram að hundsa neytendalög sem kveða á um að tiltaka þurfi fyrra verð þegar sérstakt tilboð er auglýst svo neytendur geti glöggvað sig á hversu mikið þeir spara.

Tvennt sem við rekum augun í prontó. Annars vegar að þrátt fyrir sérstakt tilboðsverð Icelandair er Wow Air undantekningarlítið að bjóða lægra verð til flestra þessara staða. Og hafðu í huga að auglýst verð hér er án alls farangurs nema 10 kílóa handfarangurs. Tæplega fjögur þúsund krónum lægra verð með Wow Air til bæði Boston og Orlandó svo aðeins tvö dæmi séu tekin.

Lágmark að sérstök hraðtilboð Icelandair jafni hefðbundin fargjöld Wow Air.

Hins vegar er mínus líka að mesta verðlækkun sem við finnum frá venjulegu verði er til Orlandó. Hraðtilboðsverð Icelandair til þeirrar borgar aðra leiðina út er 26.900 krónur. Sem er í sjálfu sér merkilegt því við finnum fargjöld í nóvember aðra leið út fyrir 25.525 krónur.

Látum það liggja milli hluta að sinni. Allra lægsta verð fram og aftur á hraðtilboðsverði án farangurs kostar til Orlandó 52.715 krónur. En sökum þess að aðeins eru tvær vikur síðan við leituðum akkurat að lægsta verði á flugi til og frá Orlandó með Icelandair þá vitum við að þá var hægt að komast til og frá í nóvember fyrir 58.645 krónur á mann.

Sem merkir að „hraðtilboðið” rétt slefar í 11% verðlækkun umfram hefðbundin fargjöld. Vissulega afsláttur en hver hleypur út í Kringlu eða Smáralind fyrir slík afsláttarkjör?

Þriðja atriðið sem er athyglisvert er að Icelandair er hægt og bítandi að lækka fargjöldin þrátt fyrir allt. Allra lægsta fargjald á sardínufarrými með Icelandair til Boston og heim aftur á síðasta hraðtilboði flugfélagsins í ágúst kostaði rúmar 35 þúsund krónur. Nú, rúmum mánuði síðar, kostar sama flugið lægst 33.815 krónur. Tæplega tvö þúsund kall niður.

Jákvætt en betur má ef duga skal. Hraðtilboð sem ekki skáka hefðbundnum fargjöldum Wow Air munu seint rokka nema hjá fólki sem sefur í seðlum. Og fyrir það fólk skipta stöku þúsundkallar engu máli.