Ferðavanir þekkja vandamálið. Við öll með tölvur, síma og jafnvel spjaldtölvur í farangri þessa síðustu og verstu. Og sökum alvarlegra takmarkana á handfarangri þá hendum við gjarnan tölvum okkar rakleitt í innritaðan farangur. Það gæti verið alvarleg mistök.

Ekki birtist stafur um það í íslenskum fjölmiðlum en fyrr í vikunni kviknaði fyrirvaralaust upp eldur í vél Ryanair frá Barselóna til Ibísa með tilheyrandi harmakvæli farþega. Farþegum tókst, góðu heilli, eftir maus og moður að slökkva eldinn.

Og hver skyldi nú vera orsök eldsvoðans? Jú, Apple farsími!!!

Flugmálayfirvöld beggja vegna Atlantsála, en þó ekki hérlendis, rannsaka nú enn frekar hvort banna eigi alfarið öll rafeindatæki í flugi sökum þess að velflest slík tæki eru knúin liþíum-rafhlöðum. Það var eitt slíkt tæki sem varð alelda á svipstundu í áætlunarvél Ryanair milli Barselóna og Ibísa fyrr vikunni og skapaði glundroða par exellans á svipstundu eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Liþíum-rafhlöður halda næstum öllum okkar rafeindatækjum lifandi þessa síðustu og verstu en illu heilli þykir enn ekki hafið yfir allan vafa að þær séu að fullu öryggar. Það voru til dæmis liþíum-rafhlöður sem ollu margra mánaða töfum á afhendingu nýrra áætlunarvéla Boeing-verksmiðjanna fyrir nokkrum árum sökum þess að það kviknaði í þeim sísona á ýmsum tímum.

Ný bandarísk rannsókn hefur nú leitt í ljós að eldvarnarkerfi hefðbundinna farþegavéla ráða EKKI við eldsvoða vegna liþíum-rafhlaðna ef eldfimt efni er við eða nálægt upptökum. Og ekki einn einasti hlaðmaður á nokkrum flugvelli heims er að spá hið minnsta í hvort töskur farþega eru við hlið eldfims efnis eður ei.

Spurt er: ef liþíum rafhlöður geta mögulega grandað flugvél, hvers vegna er ekki blátt bann við að farþegar hafi með sér síma, spjaldtölvur eða fartölvur um borð? Er það ekki eðlilegt framhald af því að banna naglalakk og hársprey?