„WOW air endurgreiðir ekki flugmiða nema forfallavernd sé til staðar. Við mælum með slíkri vernd. Forfallavernd er aðeins hægt að kaupa um leið og flugmiðinn er bókaður, en ekki eftir á. Um leið hvetjum við gesti okkar til að kynna sér skilmála kreditkortafyrirtækjanna, sem flest bjóða upp á ferðatryggingu.”

Forfallavernd Wow Air? Hún dugar aðeins í sjö sólarhringa. Skjáskot
Dabbadona!!!
Forfallavernd er brilljant hugmynd ef þú ert áttræður með nýrnasýki eða sextug með garnaflækju. Eða öfugt 🙂
Þess utan ertu að henda peningum á glæ. Frískt miðaldra fólk á ekki að þurfa að punga út aukalega fyrir forfallavernd fram og aftur til Tenerife með Wow Air. Víst getur ýmislegt komið fyrir en líkurnar eru svipaðar og að vinna í lóttóinu. Sem gerist sirkabát aldrei.
Nema hvað, nú kemur í ljós að það eru takmörk á „forfallatryggingu” Wow Air. Ef þú heimtar ekki seðla SJÖ dögum ÁÐUR en för er frestað geturðu bara átt þig samkvæmt skilmálum flugfélags Skúla Mogensen.
Nú væri eðlilegt að takmörk væru tiltekin í smáa letri flugfélagsins en svo er ekki. Við leit á vef Wow Air kemur aðeins þetta í ljós:
WOW air endurgreiðir ekki flugmiða nema forfallavernd sé til staðar. Við mælum með slíkri vernd. Forfallavernd er aðeins hægt að kaupa um leið og flugmiðinn er bókaður, en ekki eftir á. Um leið hvetjum við gesti okkar til að kynna sér skilmála kreditkortafyrirtækjanna, sem flest bjóða upp á ferðatryggingu.
Forfallavernd tryggir endurgreiðslu fargjalds ef gestur getur ekki farið í fyrirhugaða ferð vegna: dauðsfalls, skyndilegs alvarlegs sjúkdóms eða slyss sem krefst sjúkrahússvistar hans, maka hans, barns hans eða barnabarns, foreldra hans eða tengdaforeldra, afa hans, ömmu eða systkina (framvísa þarf læknisvottorði), verulegs eignatjóns á heimili hans eða í einkafyrirtæki sem gerir nærveru hans nauðsynlega (lögregluskýrsla liggi fyrir). Framangreind atvik skulu vera þess eðlis að óhjákvæmilegt sé að afturkalla áður gerða pöntun.
Óskir þú eftir endurgreiðslu vegna forfallaverndar þarftu að senda okkur tölvupóst á wow@wow.is með eintaki af stimpluðu læknisvottorði/ dánarvottorði eða lögregluskýrslu, ásamt bókunarnúmeri innan sjö daga frá brottför og tilgreina ástæður þess að þú getur ekki ferðast á settum dagsetningum.
Athugið að vottorð/skýrsla skal vera dagsett.
Vinsamlegast athugið að forfallaverndin er ekki yfirfæranleg; breytanleg, né fæst hún endurgreidd.
Jamm og jæja. Dýr forfallavernd dekkar þig aðeins í sjö daga en ekki stafur um það í skilmálunum. Og þetta nú ratað í fjölmiðla vestanhafs…







