Svo virðist sem annar hver innlendingur hafi annaðhvort þegar verið í Póllandi eða sé á leiðinni til að spara sér tug- eða hundruð þúsunda og jafnvel milljónir króna í hvers kyns aðgerðum. Þar hjálpar auðvitað að þangað er hræbillegt að fljúga með Wizz Air. En Pólland er líka príma pleis svona ef þig langar lengra út í heim fyrir lítið.

Til Varsjá er oft komist fram og aftur fyrir 30 þúsund krónurnar. Þaðan er hægt að fara mun víðar á hlægilegu verði.
Það segir sig sjálft að í landi þar sem meðallaun eru sirka helmingi lægri en á Íslandinu góða er það ekki bara rassasog og tannréttingar sem kosta helming af því sem við borgum hér heima.
Allt í þessu landi kostar helmingi minna og það að lágmarki. Gisting og veitingar hvers kyns oftar en ekki 60-70 prósent ódýrara en heimavið. Sem útskýrir að stórum hluta að hér starfi þúsundir Pólverja á lágmarkslaunum en séu samt nokkuð sáttir við allt og allt. Lágmarkslaun hér eru líka vel rúmlega helmingi hærri en lágmarkslaun í Póllandi.
Þetta gildir auðvitað líka um flug frá Póllandi til fjarlægra landa. Sem gerir Pólland að toppstað ef þú vilt fljúga eitthvað á botnverði.
Dæmi um þetta má finna á vef ríkisflugfélagsins LOT þessi dægrin. Flugfélag, sem nóta bene, er ekki lággjaldaflugfélag. Þar eru tilboðsdagar í gangi og þar af ýmsu að taka. Eða hvernig hljómar flug fram og aftur til Istanbúl fyrir 19 þúsund íslenskar krónur? Hvað þá með flug fram og aftur til Odessa í Úkraínu fyrir 13 þúsund krónur! Nú eða báðar leiðir til Tblisi í Georgíu fyrir átján þúsund alls!
Fátt eitt þá nefnt og LOT er engan veginn eina flugfélagið sem býður túra um allar trissur á súperverði frá Póllandi. Sakar ekki að kíkja ef landinn vill skoða heiminn án þess að maxa kortin í tætlur.







